Freyja með brons á EM

Freyja Dís Benediktsdóttir i BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í undankeppni einstaklinga á EM í trissuboga kvenna endaði Freyja með 545 stig sem dugði henni í 15 sæti í undankeppni einstaklinga á EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni einstaklinga á EM.

Freyja mætti því í lokakeppni EM Elisa Roner frá Ítalíu í 16 manna úrslitum sem var í öðru sæti í undankeppni EM. Elisa hefur einnig unnið tvo síðustu EM í röð og 3 af 4 síðustu EM innandyra ásamt því að vinna síðustu Evrópuleika og það var ljóst að hún væri ekkert lamb að leika sér við. Elisa gaf smá færi á sér í fyrstu umferð en svo eftir það var það bara tíur allann leikinn, lítið hægt að gera á móti því. Freyja var því slegin út af EM 148-139 og endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni.

Í trissuboga kvenna liðakeppni voru stelpurnar (Eowyn, Freyja og Anna) slegnar út af heimaþjóðinni Búlgaríu í undan úrslitum og enduðu því á því að taka bronsið á EM. Þriðja brons sem Ísland hefur unnið í röð í trissuboga kvenna.

Freyja hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.