Freyja Dís með silfur og brons á NM ungmenna í Svíþjóð

Freyja Dís Benediktsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann brons í einstaklingskeppni, silfur verðlauna í liðakeppni og sló landsliðsmet í liðakeppni á Norðurlandameistaramót ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Freyja var í öðru sæti í undankeppni mótsins í einstaklingskeppni trissuboga kvenna U21 og sat hjá í 8 manna úrslitum. Í undanúrslitum mætti hún Annika Maracussen frá Danmörku þar sem að Daninn hafði betur 126-118 og Freyja fór því í brons úrslitaleikinn.

Brons úrslitin á NUM var al Íslenskur leikur þar sem að mættust Freyja og Theo Hrafns í mjög spennandi  og jöfnum leik. Theo byrjaði 1 stigi yfir í fyrstu umferð 26-25 en Freyja snéri leiknum við í 1 stigs forystu 52-51. Freyja hélt forystunni í þriðju umferð og Theo náði svo að jafna leikinn 105-105 og aðeins ein umferð eftir. Þar tók Freyja umferðina 22-21 og leikinn 127-126. Freyja tók því bronsið í einstaklingskeppni á NM ungmenna.

Í liðakeppni mættu Freyja og liðsfélagar hennar Ragnar Smári Jónasson og Kaewmungkorn Yuangthong liði Danmerkur í gull úrslitaleiknum sem var gífurlega jafn og spennandi.

Ísland byrjaði 3 stigum undir eftir fyrstu umferð 56-53, en náði svo að saxa forskotið niður í 1 stig í annarri umferð og Ísland náði 2 stig forskoti í þriðju umferð. Í síðustu umferð leiksins náðu Danir að jafna leikinn og því þurfti bráðabana til þess að ráða hvort liðið yrði Norðurlandameistari. Þar náðu Danir naumum sigri 29-28 og tóku titilinn. Lið Freyju tók því silfið á NM ungmenna, en þó með nýtt landsliðsmet á NM ungmenna 217 stig á meðan eldra metið var 207 stig.

Vert er að geta að Danir eru ein sterkasta þjóð í heiminum í trissuboga og karla meistaraflokks liðið þeirra er t.d. í öðru sæti á heimslista í dag. Ansi gott að svo naumur munur sé á milli Íslensku og Dönsku ungmennanna, sem er næsta kynslóð meistaraflokks.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Freyja Dís Benediktsdóttir – Brons (3 sæti) – Trissuboga U21 kvenna – BFB
  • Freyja Dís Benediktsdóttir – Silfur (2 sæti) –  Trissuboga U21 lið (Ísland)
  • Íslandsmet Trissubogi U21 lið útsláttarleikur – 217 stig – Metið var áður 207 stig
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Freyja Dís Benediktsdóttir
    • Kaewmungkorn Yuangthong

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons