
Freyja Dís Benediktsdóttir úr BFB Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil U21 kvenna og sló Íslandsmet í félagsliðakeppni á Íslandsmóti U21 sem haldið var sunnudaginn 9 mars.
Í einstaklingskeppni trissuboga kvenna U21 kepptu í gull úrslitaleiknum Freyja og Þórdís Unnur Bjarkadóttir liðsfélagi hennar. Freyja vann gull úrslitaleikinn 142-139 í mjög jöfnum úrslitaleik og tók Íslandsmeistaratitilinn í trissuboga U21 kvenna.
Í einstaklingskeppni (óháð kyni) trissuboga U21 vann Freyja brons úrslitaleikinn örugglega 138-132 gegn Jóhannesi Karli Klein úr BFHH Hafnarfirði.
Í trissuboga félagsliðakeppni vann Freyja silfur með liðsfélaga sínum Sóldísi Ingu Gunnarsdóttir.
Freyja sló einnig Íslandmetið í tveggja manna undankeppni félagsliða með skorið 1130, metið var áður 1129. En gaman er að geta þessa að tæknilega séð voru þrjár manneskjur sem slógu liðametið fyrir Bogann. Freyja og Þórdís voru jafnar í skori í undankeppni ÍM U21 í skori og fjölda 10 og 9. Þannig að hlutkesti þurfti að ráða hvor endaði í 2 manna liðinu með Ragnari sem var efstur í undankeppni mótsins. Þórdís vann hlutkestið. Íslandsmetið í undankeppni er tæknilega séð slegið sem lið en ekki sem einstaklingur, en haldið er utan um hvaða liðsmenn áttu hlutdeild að metinu. Þar sem að Þórdís og Freyja voru jafnar í undankeppni og áttu því jafn mikla hlutdeild í metinu eru þær báðar skráðar fyrir metinu. 3 persónur slógu 2 manna félagsliðamet. Þetta hefur aðeins gerst einu sinni áður í manna minnum að tveir keppendur hafa þurft að deila Íslandsmeti með sama árangur á sama degi.
Góð frammistaða hjá Freyju á ÍM U21.
- Íslandsmeistari trissuboga U21 kvenna
- Silfur trissubogi U21 félagsliðakeppni
- Brons trissuboga U21 (óháð kyni)
- Íslandsmet trissuboga U21 undankeppni félagsliða 1130 stig (metið var áður 1129)