
Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir í Íþróttafélginu Akri á Akureyri endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Freydís var í 18 sæti í undankeppni mótsins í sveigboga U21 kvenna og mætti í 32 manna úrslitum Christin Wiklund frá Noregi. Þar sló sú Norska Freydísi út 6-0 og Freydís endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni NUM 2025
Í liðakeppni léku Freydís og liðsfélagar, Ari Björk og Alís Janey Elmarsdóttir, í liði Íslands gegn liði Noregs í 16 liða úrslitum. Þar tóku Norðmenn sigurinn í leiknum 6-0, slógu Ísland út og Freydís og liðsfélagar enduðu því í 9 sæti í liðakeppni á NUM.
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir – 17 sæti – sveigboga U21 kvenna – ÍFA
- Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir – 9 sæti – Sveigboga U21 lið (Ísland)
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons