Eydís Elide Sæmundsdóttir Sartori Íslandsmeistari með 2 Íslandsmet og 7 sæti á NM ungmenna

Eydís Elide Sæmundsdóttir Sartori í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á ÍM ungmenna utandyra (ÍMU) í Hafnarfirði 28 júni og NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Á ÍMU vann Eydís Íslandsmeistaratitil trissuboga U18 félagsliða og setti nýtt Íslandsmet með liðinu. Ásamt hreppti hún silfrið í bæði trissuboga U18 kvenna og í trissuboga U18 óháð kyni á ÍMU.

Í einstaklingskeppni NM sat Eydís hjá í 16 manna úrslitum og hélt því beint í 8 manna úrslit. Eydís mætti í 8 manna úrslitum Elsa Åkerlund frá Svíþjóð, en Eydís var orðin mjög slöpp í öxlinni og ákvað að klára ekki leikinn. Leikurinn endaði 124-63 og Eydís endaði því í 8 sæti á NM í einstaklingskeppni.

Í undankeppni NM ungmenna setti Eydís ásamt liðsfélögum sínum Íslandsmet í liðakeppni NUM. Í útsláttarkeppni liða á NUM voru Eydís og liðsfélagar hennar Sóldís og Magnús svo slegin út í 8 liða úrslitum og enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á NM ungmenna.

Samantekt af niðurstöðum Eydísar á ÍMU og NUM:

  • 7 sæti trissuboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
  • 8 sæti trissuboga kvenna U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna
  • Trissuboga U16 NUM landsliðsmet undankeppni – 1647 stig
    • Eydís Elide Sæmunds Sartori BFB
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB
    • Magnús Darri Markússon BFB
  • Trissboga U18 félagslið undankeppni – 1129 stig (nýtt met)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Eydís Elide Sæmunds Sartori

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.