Eydís Elide með brons á EM, fyrstu verðlaun Íslands á EM í greininni

Eydís Elide Sartori úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 kvenna var Eydís með þokkalega gott skor 546 stig og endaði í 25 sæti í undankeppni EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Eydís mætti því í fyrsta leik 32 manna lokakeppni EM Aurelia Mlinaric frá Króatíu sem var í 8 sæti í undankeppni EM. Þar tók sú Króatíska sigurinn 146-138. Leikurinn byrjaði illa hjá Eydísi en var svo í raun mjög góður í seinni fjórum umferðum, sú Króatíska var bara sterkari að þessu sinni. Eydís var því slegin út af EM í einstaklingskeppni og endaði því í 17 sæti á EM 2026

Í liðakeppni trissuboga kvenna U21 endaði Íslenska liðið (Þórdís, Sóldís og Eydís, eða “dísirnar”) í 5 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Stelpurnar okkar mættu Danmörku í 8 liða úrslitum í æsispennandi leik. Þar komu okkar stelpur inn með sterka frammistöðu og slógu landsliðsmetið í útsláttarleik trissuboga U21 kvenna og jöfnuðu landsliðsmetið í útsláttarleik trissuboga meistaraflokks kvenna með 227 stig. Þó að Danirnir væru taldir sterkari þjóðin miðað við skor úr undankeppni og Ísland væri underdog leiksins þá höfðu Danir engin svör við því og Ísland tók öruggann sigur 227-224 og hélt áfram í undanúrslit EM.

Í undanúrslitum EM mættu stelpurnar okkar liði Rús…. uuu Individual Neutral Athletes (AIN) 😅.  Þar spiluðu okkar stelpur fínann leik en þær Rús… hehem hlutlausu reyndust sterkari og tóku sigurinn 230-223. Okkar stelpur fóru því í brons úrslitaleikinn. (AIN eru íþróttamenn frá löndum sem er bannað að keppa undir eigin fána á íþróttaviðburðum. Í um mitt ár 2025 ákvað IOC að leyfa íþróttamönnum í ungmenna flokkum að keppa einnig í liðakeppni til að refsa ekki óþarflega yngri kynslóð sem hefur lítið val eða áhrif á aðstæður í heiminum og ástæður þess að land þeirra er bannað úr íþróttaviðburðum. Þess vegna er þetta furðulega ástand að Individual Neutral Athletes eru að keppa í Team competition)

Stelpurnar okkar mættu svo erkifjendum Ítalíu í brons úrslitaleik trissuboga U21 kvenna. En Ítalía hefur slegið Ísland út af EM í 8 liða úrslitum síðustu 3 EM í röð, og nánast verið “gate-keeperinn” á því að Ísland keppi um verðlaun í greininni. Því miður var leiknum ekki streymt beint þar sem að þátttaka á EM á þessu ári var það mikil og með viðbót blandaðrar liðakeppni (mixed team) var ekki nægur tími í skipulaginu til þess að geta einnig streymt brons leikjum í liðakeppnum á EM. Leikurinn var hryllilega spennandi og stelpurnar skiptust á forskotinu.

Ísland byrjaði 2 stigum yfir 57-55 í fyrstu umferð, og stelpurnar jöfnuðu umferð 2 56-56 og Ísland hélt því 2 stiga forskotinu eftir umferð 2 113-111. Ítalía náði að snúa leiknum við í 1 stigs forystu 169-168 í þriðju umferð með 58-55 umferð. Í síðustu umferð leiksins náðu stelpurnar okkar svo glæsilegri umferð 58-57 og jöfnuðu leikinn 226-226 og knúðu fram bráðabana um það hvort liðið myndi hreppa bronsið á EM. Í bráðabananum byrjuðu bæði liðin á 10-9 og allt kom því niður á síðustu ör bráðabananns þar sem Ísland þrumaði í 10 og þær Ítölsku í 9 og Ísland tók því sigurinn og bronsið í bráðabana 29-28 og þar með fyrstu verðlaun Íslands í trissuboga kvenna U21 í sögu íþróttarinnar.

Sérstaklega vel gert hjá okkar stelpum. Danmörk, Ítalía og “AIN” eru allt lið sem eru að meðaltali sterkari en stelpurnar okkar, en þó ekki með gífurlega miklum mun. Ekki svo sterka að þau myndu vinna hlutfallslega alla leiki. Dagsformið hjá okkar stelpum var bara betra að þessu sinni og þar sem allar okkar stelpur eru ungar (16, 17 og 18 ára) og eiga langann feril eftir í U21 flokki er líklegt að þær muni mæta enn sterkari til leiks á næsta EM og því ekki ólíklegt að við sjáum fleiri verðlaun frá þeim í framtíðinni í þessum flokki.

Samantekt af árangri á EM:

  • Undankeppni einstaklinga EM 25 sæti
  • Lokakeppni einstaklinga EM 17 sæti
  • Liðakeppni Brons (3 sæti)
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Eydís Elide Sartori
  • Trissuboga kvenna U21 útsláttarleikur landsliðsmet 227 stig, en metið var áður 222 stig (slógu metið þrisvar á EM 2026)
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Eydís Elide Sartori
  • Trissuboga kvenna meistaraflokkur útsláttarleikur 227 stig, sem jafnar núverandi kvenna metið 227 stig Sóldís/Eydís/Þórdís (Þær jöfnuðu líka karla m.fl. metið, U21 kvenna liðið okkar er sterkt enda tóku þær brons á EM 😉)

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu