
Eydís Elide Sartori í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 4 sæti liðakeppni, 9 sæti í einstaklingskeppni og sló landsliðsmet í liðakeppni á Norðurlandameistaramót ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Eydís var í 10 sæti í undankeppni mótsins í einstaklingskeppni trissuboga kvenna U18 og mætti í 16 manna úrslitum Saga Borgner frá Svíþjóð, þar sem að sú Sænska hafði betur 112-89 og Eydís endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna.
Í liðakeppni mættu Eydís og liðsfélagar hennar, Eyrún Eva Arnardóttir og Þórdís Unnur Bjarkadóttir, sameinuðu Norðurlandaliði (Nordic Team) í 8 liða úrslitum. Ísland byrjaði með 3 stiga forystu eftir fyrstu umferð, 7 stiga forystu eftir aðra umferð, andstæðingarnir náðu svo að að minnka munninn í 2 stig 151-153 á leið í síðustu umferð. Þar tóku okkar stelpur umferðina 51-49 og leikinn 204-200 og héldu því áfram í undanúrslit NUM. Þær slógu einnig landsliðsmetið í útsláttarkeppni liða sem var áður 201 stig.
Í undanúrslitum mættu stelpurnar okkar liði Svíþjóðar. Svíjar náðu 7 stiga forskoti eftir fyrstu tvær umferðir, stelpurnar okkar náðu að minnka forskotið í þriðju umferð og liðin jöfnuðu fjórðu umferð, ekki nægur tími til að vinna muninni til baka, þannig að Svíjar tóku sigurinn 209-203 og fóru í gull úrslit á meðan að stelpurnar okkar fóru í brons úrslitin. En samt vel gert hjá stelpunum þar sem þær voru aftur yfir gamla landsliðsmetinu sem var 201 stig.
Í brons úrslitum mætti stelpurnar okkar Norska liðinu. Stelpurnar okkar byrjuðu á því að leiða leikinn með einu stigi eftir fyrstu umferð 48-47. Norðmenn snéru því við í 1 stigs forystu í umferð 2. Svo kom eitt úps skot frá okkar stelpum sem M (0 stig framhjá skorsvæði) sem setti þær 14 stigum á eftir og aðeins ein umferð eftir. Þar náðu Norðmenn tveim stigum í viðbót og unnu leikinn örugglega 206-190. Stelpurnar okkar enduðu því í 4 sæti í liðkeppni á NM ungmenna.
Gaman er að geta þess að við tölum um stelpurnar okkar þar sem að allt lið Íslands voru stelpur, en liðakeppni er óháð kyni á NM ungmenna, þannig að stelpurnar okkar voru oftar en ekki að keppa við stráka í hinum liðunum 😉
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Eydís Elide Sartori – 9 sæti – Trissuboga U18 kvenna – BFB
- Eydís Elide Sartori – 4 sæti – Trissuboga U18 lið (Ísland)
- Trissubogi U18 lið útsláttarleikur – 204 stig – Metið var áður 201 stig
- Eyrún Eva Arnardóttir
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Eydís Elide Sartori
- (Þau slógu metið tæknilega séð tvisvar með 204 og 203 stig í útsláttarleikjum á NUM)
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons