Eydís Elide í 9 sæti á þátttökumesta ungmennamóti í sögu World Archery Europe

Eydís Elide Sartori endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti ungmenna – EBU (European Youth Cup) sem haldið var í Catez Slóveníu  27 júlí – 3 ágúst. Mótið var þátttökumesta ungmennamót í sögu World Archery Europe.

Í trissuboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team) var Eydís ásamt liðsfélaga sínum Ragnari Smára, í 11 sæti í undankeppni EBU. Þau mættu því liði Þýskalands í 16 liða úrslitum og leikurinn var nokkuð jafn.

Leikurinn byrjaði illa 29-39 með mjög lakri umferð frá Íslandi og næstum fullkomnri umferð frá Þýskalandi sem gaf þeim 10 stig forskot og nánast öruggt að Þýskaland myndi sigra leikinn. Íslendingarnir létu það þó ekki hafa áhrif á sig og svöruðu í sömu mynt með næstum fullkomna umferð 39-38 og söxuðu 1 stig af forskoti Þýskalands. Í þriðju og fjórðu umferð jöfnuðu Ísland og Þýskaland 35-35 og 36-36. Þannig að mjög vel af sér gert af Íslendingunum að láta ekki lélega umferð í upphafi hafa áhrif á sig og standa í hárinu á Þýskalandi, sem er eitt sterkasta lið í heiminum. En slegin út í 16 liða úrslitum þýðir að Ísland endar í 9 sæti.

Vert er að geta að í trissuboga þá er það lið sem skorar hærra skor í heild það sem vinnur leik, en í sveigboga eru stig gefin fyrir hverja lotu. Ef að lotukerfinu væri beitt þá hefði leikurinn endað í jafntefli (0-2, 2-2, 3-3, 4-4) og það hefði þurft bráðabana til þess að ákvarða hvort liðið tæki sigurinn og héldi áfram á mótinu í 8 liða úrslit. En svo er ekki og Íslenska liðið endaði því í 9 sæti á EBU eftir að tapa í 16 liða úrslitum 139-148 gegn Þýskalandi. En samt vel af sér vikið og mjög jafn leikur að mestum hluta.

Þetta er í annað sinn sem Eydís keppir á Evrópubikarmóti, en Ragnar og Eydís voru einnig lið Íslands á Evrópubikarmótinu í Búlgaríu í maí á þessu ári, þar sem þau tóku bronsið í liðakeppni eftir sigur á Búlgaríu 141-122 í bronsúrlitaleiknum.

Í undankeppni einstaklinga skoraði Eydís 555 stig og var í 31 sæti í trissuboga U21 kvenna. Í 32 manna úrslitum lék Eydís gegn Sofiia Mun frá AIN (Authorised Neutral Athlete, frá þjóðum sem eru bannaðar vegna stríðs eða af öðrum ástæðum). Þar vann Sofiia 140-129 og sló Eydís út úr einstaklingskeppni. Eydís endaði því í 17 sæti einstaklinga í lokaniðurstöðum EBU.

Mótið sjálft var án vafa sögulegur viðburður í stærð og fjölda þátttakenda og ekki langt frá því að segja að mótið hafi verið á HM leveli, enda nokkrar þjóðir utan Evrópu sem kepptu á mótinu líka.

  • 317 keppendur á Evrópubikarmóti 2017 í Króatíu var áður stærsta ungmennamót  í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • 363 keppendur á EM ungmenna 2024 í Rúmeníu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • Stærsta HM í sögu íþróttarinnar 584 og mótið nær því ekki að vera stærra en stærsta HM. En var sambærilegt í fjölda þátttakenda og 2 HM á síðustu 20 árum.
  • 393 keppendur voru skráðir á Evrópubikarmótið í Slóveníu núna. Sem er því bæði stærra en öll Evrópubikarmót ungmenna sem haldin hafa verið og stærra en öll EM ungmenna sem haldin hafa verið hingað til. Sem gerir það að stærsta heimsálfu ungmennamóti í sögu íþróttarinnar.

Í heildina með þjálfurum/liðsstjórum voru yfir 500 þátttakendur á EBU í Slóveníu og slær einnig metið í heildarfjölda þátttakenda.

Samantekt af árangri:

  1. 17 sæti – Eydís Elide Sartori BFB – Trissuboga kvenna U21
  2. 9 sæti – Trissuboga U21 blandað lið (mixed team)
    • Ragnar Smári Jónasson BFB
    • Eydís Elide Sartori BFB

Eydís hefur því lokið keppni á Evrópubikarmótinu. En mögulegt verður að lesa nánar um mótið eftir að því lýkur að fullu á vefsíðu Bogfimisambands Íslands hér:

Home