Á þessu móti verður keppt í opnum flokki, karla og konur keppa saman í flokki (unisex) og útsláttarkeppni verður á mótinu.
Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) var breytt í fjarmót og verður aðeins á einum degi. Sökum þess verður Íslandsmót ungmenna og NUM haldið á sömu helgi (NUM á laugardegi og Íslandsmót ungmenna á sunnudegi) til að lágmarka kostnað þeirra sem þurfa að ferðast til þess að taka þátt í mótunum.
Sökum þess er Íslandsmót öldunga haldið sem sér mót á laugardegi, þar sem völlurinn verður að mestu uppsettur og tilbúinn til mótahalds þessa helgi hvort sem er opnaðist möguleiki á því að halda annað mót í opnum flokki á sömu helgi á sunnudeginum.
Þetta mót er tilkomið vegna þess. Nánari upplýsingar og skráning síðar þegar nær dregur móti og allar upplýsingar eru staðfestar.
Leave a Reply
You must be logged in to post a comment.