Eowyn með brons á EM

Eowyn Marie Mamalias i BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni trissuboga kvenna stóð Eowyn sig flott í undankeppni EM með 567 stig sem dugði henni í 10 sæti í undankeppni einstaklinga á EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni einstaklinga á EM.

Eowyn mætti því í lokakeppni EM Francesca Aloisi frá Ítalíu í 16 manna úrslitum. Leikurinn var mjög jafn og spennandi. Stelpurnar byrjuðu jafnar 28-28 en svo átti Eowyn laka umferð sem gaf Ítölsku 3 stiga forskot 57-54. Eowyn náði að vinna eitt stig til baka í þriðju umferð 85-83 og sú Ítalska náði því til baka í umferð 4 114-111. Stelpurnar jöfnuðu svo síðustu umferðina og loka niðurstaðan var 143-140 sigur fyrir Ítölsku og Eowyn því slegin út og endaði í 9 sæti á EM 2026.

Alfreð og Eowyn kepptu í blandaða liði Íslands á EM (mixed team 1kk+1kvk). Þau enduðu í 8 sæti í undankeppni EM þar sem 16 efstu lið halda áfram í lokakeppni EM.

Í lokakeppni EM (útsláttarleikjum) í blandaðri liðakeppni var Ísland á endanum slegið út í 8 liða úrslitum af gífurlega sterku liði Danmerkur (sem var einnig efsta liðið í undankeppni EM), þar sem að Danir settu heimsmet í leiknum á móti Íslandi með 159 stig. Leikur sem maður getur vel sætt sig við að tapa enda heimsmet ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi. Ísland endaði því í 7 sæti á EM. Danir komust á endanum í gull úrslit þar sem þeir töpuðu 157-155, en samt flott frammistaða hjá þeim á mótinu, að venju enda Danmörk ein sterkasta trissuboga þjóð í heimi.

Í trissuboga kvenna liðakeppni voru stelpurnar (Eowyn, Freyja og Anna) slegnar út af heimaþjóðinni Búlgaríu í undan úrslitum og enduðu því á því að taka bronsið á EM. Þriðja brons sem Ísland hefur unnið í röð í trissuboga kvenna.

Eowyn hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.