Eowyn Marie Mamalias Íslandsmeistari, silfur á NM ungmenna og 6 sæti á EM ungmenna á 2 vikum

Eowyn Marie Mamalias í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði keppti á ÍM ungmenna utandyra í Hafnarfirði 28 júni, NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí og Evrópumeistaramóti ungmenna 8-14 júlí í Búkarest Rúmeníu. Non stop keppni og náði mjög góðum árangri.

ÍMU

Á Íslandsmóti ungmenna varð Eowyn Íslandsmeistari einstaklingskeppni trissuboga U21 óháð kyni.

NUM

Í NUM einstaklingskeppni var Eowyn slegin út í 8 manna úrslitum af Johanne Jiang frá Danmörku með mjög naumum mun 120-118 og Eowyn endaði því í 6 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna.

Í liðakeppni á NUM mætti Eowyn ásamt liðsfélögum sínum Ragnari og Freyju í undanúrslitum liði Svíþjóðar. Þar hafði lið Íslands betur í hörðum bardaga við Svíþjóð sem endaði 202-200 og lið Eowyn hélt því áfram í gull úrslitin. Í gull úrslitaleiknum mætti Ísland Danmörku, en þar unnu Danir 209-186. Eowyn tók því silfrið ásamt liðsfélögum sínum í liðakeppni á NM ungmenna.

EMU

Á EM ungmenna einstaklingskeppni mætti Eowyn í 64 manna úrslitum Oriana Vlasyk frá Úkraínu. Þar hafði sú Úkraínska betur 139-128 og Eowyn endaði því í 33 sæti. Leikurinn var tölfræðilega séð nánast 50/50 á hvor myndi vinna áður en hann hófst. En Úkraínska átti góðan leik og skoraði yfir meðaltali sínu á meðan að Eowyn var að skjóta leik undir meðaltali. Í raun til að vinna leikinn hefði Eowyn þurft að skjóta yfir meðaltali eins og sú Úkraínska, en það er ekki eitthvað sem maður getur pantað fyrirfram hehe

Í liðakeppni á EM ungmenna stóðu Eowyn og liðsfélagar hennar Þórdís og Freyja sig vel og voru í 7 sæti eftir undankeppni mótsins og sátu því hjá þar til í 8 liða úrslitum. Þar mættu þær Franska liðinu sem slógu Ísland út af EM 228-216 og Eowyn endaði því i 6 sæti ásamt liðsfélögum sínum í liðakeppni á EM. Stelpurnar okkar voru ekki að skjóta illa, Frakkarnir áttu bara tvær mjög góðar umferðir sem var meirihlutinn af stiga muninum í leiknum.

Evrópubikarmótaröð ungmenna 2024

Evrópubikarmót ungmenna er samanlögð frammistaða í undankeppni á utandyra ungmenna mótum Evrópusambandsins á hverju ári. Eowyn Freyja stóð sig fínt í undankeppni á Evrópubikarmótinu í Búlgaríu í maí og á EM ungmenna í Rúmeníu í júlí. Eowyn endaði í 15 sæti í Evrópubikarmótaröðinni 2024. Hvorki alþjóðabogfimisambandið né Evrópskabogfimisambandið eru með heimslista eða Evrópulista fyrir ungmenna flokka utandyra og því er Evrópubikarmót ungmenna það næsta sem kemst að “Evrópulista” í bogfimi fyrir U18 og U21 flokk. Því nokkuð flott að enda í topp 16 á “Evrópulista”.

Samantekt af niðurstöðum Freyju á ÍMU, NUM, EMU og EBMU:

  • 6 sæti trissuboga kvenna U18 einstaklingskeppni á NUM
  • Silfur trissuboga U21 liðakeppni á NUM
  • Íslandsmeistari trissuboga U21 Unisex á ÍMU
  • Silfur trissuboga U21 félagsliðakeppni ÍMU
  • Silfur trissuboga U21 kvenna á ÍMU
  • 33 sæti trissuboga kvenna U21 einstaklinga á EMU
  • 6 sæti trissuboga kvenna U21 liðakeppni á EMU
  • 15 sæti trissuboga kvenna U21 einstaklinga í Evrópubikarmótaröð ungmenna

Frekari upplýsingar um mótin er hægt að finna í fréttum Bogfimisambands Ísland hér:

Ísland í 6 sæti á EM ungmenna í hitabylgju í Rúmeníu

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.

Kópavogur og Hafnarfjörður sýndu yfirburði á ÍMU í bogfimi utandyra og tóku 27 titla og 7 Íslandsmet