
Eowyn Mamalias í BF Hróa Hetti í Hafnarfirði endaði í 57 sæti í einstaklingskeppni á HM í Gwangju Suður-Kóreu. Eowyn var aðeins 4 stigum frá því að tryggja Íslandi þátttökurétt á HM í undankeppni liða þar sem hún endaði í 25 sæti í undankeppni HM ásamt liðsfélögum sínum.
Eowyn vann sér þátttökurétt í útsláttarleikjum einstaklingskeppni HM í undankeppni með 657 stig þar sem hún endaði í 98 sæti. Topp 104 keppendur halda áfram í útsláttarleiki HM.
Í útsláttarkeppni HM mætti Eowyn í fyrsta útslætti Yurike Nina Bonita Pereira frá Indónesíu þar sem Eowyn var slegin út 147-140.
Íslenska trissuboga kvenna liðið (Anna/Eowyn/Þórdís) var aðeins 4 stigum frá því að tryggja sér þátttökurétt í liðakeppni á HM. En Filippseyjar náðu yfirhöndinni í seinni part undankeppni HM og náðu þátttökuréttinum af Íslandi með mjög naumum mun 1976-1972. Efstu 24 lið halda afram eftir undankeppni HM utandyra og Ísland endaði í 25 sæti (Filippseyjar í 24 sæti). Mjög súrt fyrir stelpurnar að það munaði þetta littlu, munurinn var bara 2 góð skot í staðin fyrir allt lagi skot af 216 skotum var eini munurinn, en þær stóðu sig allar mjög vel.
Yfir 500 keppendur og 75 þjóðir tóku þátt á HM í markbogfimi utandyra að þessu sinni, en nánar er hægt að lesa um HM í þessari frétt Bogfimisambands Íslands: