
Eowyn Marie Mamalias var að ljúka keppni á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik Slóveníu í dag. Eowyn var eini keppandi Íslands á mótinu og endaði í 17 sæti í einstaklingskeppni trissuboga kvenna meistaraflokki.
Eowyn var í 27 sæti í undankeppni mótsins með skorið 646. Eins og þeir sem þekkja til að keppa á Veronicas Cup þá er ekki mögulegt að halda mótið nema það rigni, en sólin var í feluleik og lét sjá sig inn á milli skýja af og til.
Í útsláttarkeppni sat Eowyn hjá í 48 manna útsláttarleikjum og mætti svo Meeri-Marita Paas frá Eistlandi í 32 manna úrslitum. Þar var sú Eistneska sterkari og vann leikinn gegn Eowyn 145-137 og sló Eowyn út sem endaði í 17 sæti mótsins.
Eowyn er búin að vera um nokkuð skeið í Ísreal að hitta kærasta sinn og æfa með Ísrelska liðinu. Hún ferðaðist svo með Ísrelska liðinu til Slóveníu á Veronicas Cup og flýgur svo aftur heim til Íslands frá Slóveníu eftir að mótinu lýkur.
Eowyn er almennt mikið fyrir heitt veður, en þegar hún kom frá steikjandi hitanum í Ísrael í kaldara veðrið í Slóveníu fattaði hún hvað hún hafði saknað kaldara loftslags. Það er mjög óvenjulegt fyrir Íslending að ferðast á mót úr mjög heitu og þurru loftslagi yfir í kaldara blautt veður eins og Eowyn gerði frá Ísreal til Slóveníu. Venjulega er veður breytingin í hina áttina þegar Íslendingar ferðast á mót 😆
Eowyn lauk keppni í dag en gull og brons úrslitaleikir mótsins verða á morgun (sunnudaginn 24.maí). Aðeins verður mögulegt að fylgjast með úrslitunum beint á Archery.tv rás World Archery.
Myndir af mótinu er mögulegt að finna hér:
Niðurstöður mótsins er mögulegt að finna hér: https://veronicas-cup.org/gallery/ https://www.ianseo.net/Details.php?toId=22680