Emma Rakel í 9 sæti á NM ungmenna

Emma Rakel Björnsdóttir í Íþróttafélginu Akri á Akureyri endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Emma var í 22 sæti í undankeppni mótsins í sveigboga U16 kvenna og mætti í 32 manna úrslitum Johanne Dubgaard frá Danmörku. Þar sló sú Danska Emmu út 6-0 og Emma endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni NUM 2025

Í liðakeppni léku Emma og liðsfélagar, Salka Þórhallsdóttir og Eva Kristín Sólmundsdóttir, í liði Íslands gegn liði Noregs í 16 liða úrslitum. Þar tók Norðmenn sigurinn í leiknum 6-0, slógu Ísland út og Emma og liðsfélagar enduðu því í 9 sæti í liðakeppni á NUM.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Emma Rakel Björnsdóttir – 17 sæti – sveigboga U16 kvenna – ÍFA
  • Emma Rakel Björnsdóttir – 9 sæti – Sveigboga U16 lið (Ísland)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons