Dagur Örn í 6 sæti á EM keppti í tveim greinum og sló landsliðsmet

Dagur Örn Fannarsson úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu. Dagur keppti í bæði trissuboga og sveigboga flokki á EM.

Í einstaklingskeppni trissuboga karla stóð Dagur sig fínt í undankeppni EM með 562 stig sem dugði honum í 30 sæti, 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM. Dagur mætti því Michea Godano frá Ítalíu í 32 manna úrslitum, en Ítalinn var í 3 sætí í undankeppni EM. Þar tók sá Ítalski öruggann sigur 149-139 og sló Dag út sem endaði í 17 sæti. Gaman er að geta þess að sá Ítalski vann alla sína leiki og mun leika um Evrópumeistaratitilinn á laugardaginn.

Í einstaklingskeppni sveigboga karla endaði Dagur í 44 sæti, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Í liðakeppni sveigboga karla (3kk í liði) endaði Ragnar ásamt liðsfélögum Ara og Degi í 9 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki) og strákarnir mættu því Moldóvu sem var í 8 sæti í undankeppni í 16 liða úrslitum. Þar voru strákarnir okkar ekki að ná sér á strik í leiknum á meðan Moldóva var on fire og tók sigurinn 6-0 og strákarnir enduðu því í 9 sæti á meðan Moldóva hélt áfram í 8 liða úrslit.

Frábært gengi var í trissuboga liðakeppni karla, strákarnir voru í 7 sæti í undankeppni EM og liðið var á endanum slegið út af heimsmeisturum Frakklandi í 8 liða úrslitum. Strákarnir okkar náðu fullkomnu skori í fyrstu umferð, en Frakkarnir gáfu ekkert færi á sér í leiknum enda aðeins einu stigi frá fullkomnu skori og því að jafna heimsmetið í leiknum gegn Íslandi. Strákarnir okkar voru því slegnir út og enduðu því í 6 sæti á EM 2026 og Frakkar unnu sig á endanum upp í gull úrslitaleikinn á föstudaginn.

Gaman er að geta þess að strákarnir okkar slógu landsliðsmetið í trissuboga karla sem er 12 ára gamalt frá því að Ísland vann fyrst þátttökurétt á HM árið 2014 í trissuboga karla. Það met var 226 stig og strákarnir slógu það því með einu stigi.

Dagur hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.