Dagur Logi Rist Íslandsmeistari og í 9 sæti á NM ungmenna

Dagur Logi Rist Björgvinsson í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði keppti á ÍM ungmenna utandyra í Hafnarfirði 28 júni og NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí. Hann vann Íslandsmeistaratitil karla á ÍM ungmenna ásamt silfri í keppni óháð kyni og á NM ungmenna endaði hann í 17 sæti í einstaklingskeppni og 9 sæti í liðakeppni.

Á NM var Dagur sleginn út í einstaklingskeppni af Oskar Hvitstein Røed frá Noregi 6-2 í 32 manna úrslitum og Dagur endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni. Í liðakeppni NM sló Sænska liðið Dag og liðfélaga hans út 6-0 í 16 liða úrlslitum og þau enduðu því í 9 sæti í liðakeppni.

Samantekt af niðurstöðum Dags á ÍMU og NUM:

  • 9 sæti sveigboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
  • 17 sæti sveigboga karla U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna
  • Íslandsmeistari Sveigbogi U16 karla á ÍMU
  • Silfur Sveigbogi U16 Unisex á ÍMU

Frekari upplýsingar um mótin er hægt að finna í fréttum Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.

Kópavogur og Hafnarfjörður sýndu yfirburði á ÍMU í bogfimi utandyra og tóku 27 titla og 7 Íslandsmet