Birkir Björnsson í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.
Í einstaklingskeppni NM var Birkir sleginn út af Håvard Ringen Synnes frá Noregi í 16 manna úrslitum og Birkir endaði því í 9 sæti á NM í einstaklingskeppni.
Í liðakeppni voru Birkir og liðsfélagar hans Eyrún og Elísabet slegin út af Norska liðinu í 8 liða úrslitum 195-185 og enduðu því í 6 sæti í liðakeppni á NM ungmenna. En 185 stig er hæsta skor sem Ísland hefur skorað í U16 liðakeppni á NUM og telst því sem Íslandsmet.
Samantekt af niðurstöðum Birkirs á NUM:
- 6 sæti trissuboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
- 9 sæti trissuboga karla U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna
- Trissuboga U16 NUM landsliðsmet útsláttarkeppni – 185 stig
- Eyrún Eva Arnardóttir BFB
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB
- Birkir Björnsson BFB
Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér: