Bergur Freyr keppti um brons á NM ungmenna skoraði hærra en 2 Íslandsmet og sló landsliðsmet 4 sinnum

Bergur Freyr Geirsson í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 4 sæti í liðakeppni, 9 sæti í einstaklingskeppni, skoraði hærra en tvö Íslandsmet og sló landsliðsmet fjórum sinnum í liðakeppni á Norðurlandameistaramót ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Bergur var í 11 sæti í undankeppni mótsins í einstaklingskeppni trissuboga karla U16. Bergur mætti William Askjær frá Danmörku í 16 manna úrslitum, þar tók Daninn sigurinn 125-118 og Bergur endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna

Í liðakeppni mættu Bergur Freyr Árnason og liðsfélagar hans, Magnús Darri Markússon og Sóldís Inga Gunnarsdóttir, í 8 liða úrslitum Svíþjóð (lið 2). Þar sem að Íslendingarnir unnu Svíjana mjög örugglega 215-193 og héldu því áfram í undanúrslit. Þau slógu einnig landsliðsmetið í útsláttarkeppni liða sem var áður 183 stig.

Í undanúrslitum mættu Íslendingarnir liði Finnlands. Þar voru Finnarnir þó sterkari og unnu Ísland 215-205. Finnarnir fóru því í gull úrslita leikinn og Íslendingarnir í brons úrlistaleikinn. Liðið okkar er þó eitt sterkasta sem Ísland hefur skipað enda skoruðu þau aftur yfir gamla landsliðsmetinu sem var 183 stig.

Í brons úrslitaleiknum mætti Ísland Danmörku. Þar tóku Danir öruggann sigur 223-200 og tóku bronsið. Ísland endaði því í fjórða sæti á NM ungmenna. Vert er að geta að Danmörk er ein sterkasta þjóð í heimi í trissuboga, og lið þeirra í meistaraflokki er í öðru sæti á heimslista í dag. Og aftur skoruðu þau yfir gamla landsliðsmetinu sem var 183 stig. Þó að það met teljist aðeins hafa verið slegið einu sinni þá er það mjög flott hjá okkar krökkum að skora alltaf yfir eldri stuðli í þróttinni.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Bergur Freyr Geirsson – 9 sæti – Trissuboga U16 karla – BFB
  • Bergur Freyr Geirsson – 4 sæti – Trissuboga U16 lið (Ísland)
  • “Íslandsmet” Bergur Freyr Geirsson – trissubogi U16 karla undankeppni (BFSÍ) – 581 stig – Metið var áður 513 (En Magnús sló metið hærra á mótinu með 593)
  • “Íslandsmet” Bergur Freyr Geirsson – trissubogi U16 karla (BFSÍ) – 118 stig – Metið var áður 112 (En Magnús sló metið 1 stigi betur með 119 á mótinu)
  • Trissuboga U16 lið undankeppni – 1803 stig – Metið var áður 1647
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Bergur Freyr Geirsson
    • Magnús Darri Markússon
  • Trissubogi U16 lið útsláttarleikur – 215 stig – Metið var áður 185 stig
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Bergur Freyr Geirsson
    • Magnús Darri Markússon
    • (Þau slógu metið tæknilega séð þrisvar með 215, 205 og 200 stig í útsláttarleikjunum á NUM)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons