Baldur Freyr Árnason kom sá og sigraði alla þrjá Íslandsmeistaratitla sveigboga U21 á Íslandsmeistaramóti U21 á laugardaginn.
Baldur vann Íslandsmeistaratitil U21 karla í 6-4 gull úrslitaleik gegn liðsfélaga sínum Elíasi Áka Hjaltasyni. Strákarnir voru jafnir 4-4 og Baldur náði sigrinum í síðustu umferð leiksins 29-21.
Baldur vann Íslandsmeistaratitil U21 óháð kyni í jafntefli og bráðabana 6-5 gegn liðsfélaga sínum Önnu Guðrúnu Yu Þórbergsdóttir. Þetta var mest spennandi leikur mótsins þau voru jöfn 4-4 og jöfnuðu svo síðustu lotuna 26-26 og leikurinn endaði því í jafntefli 5-5 og því þurfti bráðabana til að ákvarða sigurvegara, 1 ör nær miðju vinnur. Baldur skaut 8 og opnaði dyrnar fyrir Önnu að taka sigurinn, en hún náði ekki að notfæra sér það og skaut 7, Baldur tók því sigurinn og titilinn í bráðabana með minnsta mögulega stiga mun 1 stigi á ör í bráðabana og Anna tók silfrið. Elías Áki Hjaltason úr BF Boganum tók bronsið gegn Evu Krístínu Sólmundsdóttir úr ÍF Akur.
Baldur vann Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða með Bogfimifélaginu Boganum í gull úrslitaleik gegn Íþróttafélaginu Akri á Akureyri þar sem lið Baldurs öruggann sigur 6-0, þó að littlu hafi munað í skori á liðinum í öllum lotum. BF Boginn lið 2 tók bronsið.
Heljarinnar vel gert hjá Baldri þó að mjóu hafi munað í öllum úrslitaleikjunum.
Íslandsmeistaramóti í meistaraflokki sveigboga verður á sunnudaginn 07.03.2026 og Baldur er einnig skráður þar til keppni. En hvort að hann nær að endurtaka U21 árangurinn í meistaraflokki mun ráðast á morgun.