Baldur Freyr með tvö Íslandsmet og 2 titla á ÍM U18

Baldur Freyr Árnason úr Boganum Kópavogi sló tvö Íslandsmet, vann tvo Íslandsmeistaratitla U18 og tók eitt silfur á Íslandsmóti U18 sem haldið var laugardaginn 8 mars.

Baldur tortímdi algerlega Íslandsmeti sveigboga U18 með skorið 575 (af 600 mögulegum). Metið var áður 537 stig sem er 38 stiga risa hopp í getustigi sveigboga U18 karla, og er aðeins 25 stigum frá fullkomnu skori!

Í einstaklingskeppni sveigboga karla U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Anna og Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍFA Akureyri. Gull úrslitaleikurinn milli þeirra endaði í jafntefli 5-5 og þurfti því bráðabana til að ákvarða sigurvegarann. Anna og Eva skutu báðar 10 fullkomið skor, en ör Önnu var nær miðju og hún því sigurvegari leiksins og tók titilinn.

Í einstaklingskeppni (óháð kyni) sveigboga U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Baldur og liðsfélagi hans Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir. Anna vann úrslitaleikinn 7-3 í mjög jöfnum leik, þar sem að munurinn var oft talinn í millimetrum í hver tæki hvaða lotu og endanlega titilinn.

Í sveigboga félagsliðakeppni tóku Baldur og Anna liðsfélagi hans Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni. Þau tóku sigurinn 1122-978 gegn ÍFA Akur sem endaði í 2 sæti.

Anna og Baldur slógu einnig Íslandsmetið í félagsliðakeppni með skorið 1122, Íslandsmetið var áður 996 stig.

Hársbreidd frá fullkominni frammistöðu hjá Baldri á ÍM U18. Það er lítið meira hægt að gera en að slá öll met og vinna alla nema liðsfélaga sinn.

  • Íslandsmeistari sveigbogi U18 kvenna
  • Silfur U18 (óháð kyni)
  • Íslandsmeistari sveigbogi U18 félagsliðakeppni
  • Íslandsmet sveigboga U18 félagsliðakeppni 1122 stig (met áður 996)
  • Íslandsmet sveigboga U18 einstaklingskeppni 575 stig (met áður 537)