Baldur Freyr Evrópumeistari berboga U21

Baldur Freyr Árnason úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu. Baldur keppti í sveigboga og berboga á mótinu.

Í einstaklingskeppni endaði Baldur á því að þurfa að skjóta bæði undankeppni sveigboga og berboga á sama tíma, en það var stutt á milli skotmarka og hann ákvað því að gera bæði á sama tíma. Eftir að helmingur undankeppni var liðinn var hann orðinn þreyttur og ákvað því að einbeita sér frekar að undankeppni sveigboga þar sem að það voru færri en 32 að keppa í berboga U21 karla, en fleiri en 32 í sveigboga U21 karla. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM. Það gekk þó ekki að óskum og Baldur endaði í 41 sæti í undankeppni sveigboga karla U21 og náði ekki topp 32 cuttinu. Hann lauk því keppni þar í sveigboga U21 karla einstaklingskeppni á EM (það er erfitt að skipta um keppnisgrein)

 

Í einstaklingskeppni (útsláttarleikjum) berboga karla U21 Baldur liðsfélaga sínum Ragnari í 16 manna úrslitum EM. Þar tók Baldur öruggann sigur 6-0 og hélt því áfram í 8 manna úrslit, Ragnar endaði í 9 sæti á EM í berboga U21 karla einstaklinga.

Alltaf endar það Locchi vs Baldur í undanúrslitum í berboga U21 á EM. Locchi vann 2024 í undanúrslitum og Baldur tók bronsið á móti Frakka, Baldur vann í undanúrslitum 2025 og Locchi tók bronsið. Nú 2026 er aftur jafn bardagi milli þeirra um hver keppir um gullið. Locchi tók fyrst umferð 2-0, Baldur tók umferð 2 og 3 og forystuna 4-2. Locchi jafnaði í fjórðu lotu 4-4 og aðeins síðasta lotan sem ákvarðaði hver keppti um gullið og fengið að lágmarki silfur á EM 2026. En að þessu sinni tók Locchi ótrúlega fullkomna 10-10-10 umferð, sigurinn í lotunni og leiknum 6-0, og Baldur varð því undir og fór í brons leikinn.

Í brons leiknum var Baldur talinn sigurstranglegri bæði vegna fyrri skora og árangurs. En … við vitum bara ekkert hvað gerðist. Þetta var bara einn af þessum dögum þar sem að maður gerir allt eins og venjulega og ekkert gengur upp. Skotin voru fín, gekk vel á æfingu, vel hvíldur, ekki óeðlilega stressaður, meirað segja andlega sterkari en venjulega í svona úrslitum. Búið að yfirfara allan búnað og meirað segja setja upp backup/backup/backup örvar… Allar lélegu úps örvarnar ákváðu bara að koma inn á sama tíam og ein læddist inn í hverja umferð og lækkaði skorið það mikið að það endað á 6-0 tapi um bronsið. Maður getur átt frábæra leiki þar sem allt gengur upp og maður veit ekkert afhverju, að sama skapi þá getur maður átt leiki þar sem allt gengur á afturfótunum og enginn veit afhverju, þessir leikir eru sjaldgæfir, en hérna lenti einn á óheppilegum tíma. Baldur endaði því í 4 sæti í einstaklingskeppni á EM. Í fyrsta sinn á síðust þremur EM sem Baldur kemur ekki með einstaklingsverðlaun heim af EM.

Í liðakeppni sveigboga U21 mixed team (blandaðri liðakeppni). Voru Baldur og Anna í 13 sæti í undankeppni EM og mættu því Tyrklandi sem var í 4 sæti í 16 liða úrslitum (16 efstu liða halda áfram eftir undankeppni EM).

Leikurinn byrjaði á úpsi hjá okkar fólki og Tyrklandi tók fyrstu lotu 2-0. Næstu tvær lotur voru betri hjá okkar fólki en Tyrkirnir gerðu eilítið betur í báðum og tóku sigurinn 6-0 og slógu Ísland út sem endaði því í 9 sæti á EM í blandaðri liðakeppni sveigboga U21.

 

Í berboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk+1kvk) endaði Íslenska liðið (Lóa og Baldur) í 4 sæti í undankeppni EM og mættu því liði Ítalíu í undanúrslitum. Þar tók Ítalía öruggann sigur 6-0 þó að littlu mætti muna á mörgum umferðunum. Íslenska liðið fór því í brons úrslit.

Í brons úrslitum mættust Ísland og Rús… hehemm Lið AIN (Individual Neurtral Athletes). Þar tók byrjaði Ísland betur og tók fyrstu 2 umferðirnar og leiddi leikinn 4-0, Rú.. Ain tók umferð 3 og okkar fólk vann svo loka umferðina og tók leikinn 6-2 og bronsið á EM í blandaðri liðakeppni.

Í liðakeppni berboga karla U21 vann Íslenska liðið (Baldur, Ragnar og Henry) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En strákarnir áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.

Samantekt af árangri á EM:

  • Berboga undankeppni einstaklinga EM 5 sæti
  • Berboga lokakeppni einstaklinga EM 4 sæti
  • Sveigboga undankeppni einstaklinga EM 41 sæti
  • Sveigboga blönduð liðakeppni (mixed team) 9 sæti
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
    • Baldur Freyr Árnason
  • Blönduð liðakeppni (Mixed team) Brons (3 sæti)
    • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Baldur Freyr Árnason
  • Berboga Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
    • Baldur Freyr Árnason
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Henry Johnston
  • Sveigbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1017 stig
    • Baldur Freyr Árnason
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu