Astrid í 6 sæti á EM keppti í tveim greinum og sló landsliðsmet

Astrid Daxböck úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu. Astrid keppti bæði í sveigboga og berboga á EM.

Í einstaklingskeppni berboga kvenna endaði Astrid í undankeppni EM í 25 sæti með 354 stig, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Astrid mætti því 32 manna lokakeppni EM í berboga Kristina Iakunina frá AIN (hlutlausir íþróttamenn frá ríkjum sem eru í banni) sem var í 8 sæti undankeppni EM. Þar tók Kristina sigurinn örugglega 6-0

Í liðakeppni berboga kvenna endaði Astrid ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki). Stelpurnar slógu einnig Íslandsmetið í undankeppni berboga kvenna landsliða kvenna innandyra með undankeppnisskor upp á 1320 stig vs 1250 sem metið var áður.

Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Bretlandi. Bretland tók fyrstu umferðina og Ísland aðra og staðan 2-2. Bretland tók þriðju umferðina og staðan 4-2, á síðustu örinni í fjórðu og síðustu umferðinni þurfti Ísland 7 eða hærra til að vinna lotuna, jafna leikinn 4-4 og knýja fram bráðabana, svo var þó ekki að þessu sinni og síðasta örin endaði rétt fyrir utan skífuna. Bretland tók því sigurinn og hélt áfram í undanúrslit og okkar stelpur enduðu í 7 sæti. Súrt að komast ekki aftur í topp fjóra en liðið tók brons á EM í fyrra og endaði í 4 sæti 2022.

Í einstaklingskeppni sveigboga kvenna endaði Astrid í undankeppni EM í 32 sæti með 489 stig, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Astrid mætti því 32 manna lokakeppni EM number one ranked Roberta Di Francesco frá Ítalíu. Þar tók sú Ítalska sigurinn örugglega 6-0, þó að Astrid hafi verið að skjóta þokkalega vel þá var munurinn skýr milli þeirra. Astrid endaði því í 17 sæti á EM í sveigboga kvenna einstaklinga

Í liðakeppni sveigboga kvenna endaði Astrid ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki). Stelpurnar slógu einnig Íslandsmetið í undankeppni sveigboga kvenna landsliða kvenna innandyra með undankeppnisskor upp á 1610 stig vs 1549 sem metið var áður.

Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Úkraínu þar sem okkar stelpur stóðu sig flott en Úkraína átti sérstaklega sterkann leik og gaf ekkert færi á sér. Ísland var því slegið út af EM og endaði því í 7 sæti.Úkraína sýndi óvenju mikinn styrk í öllum leikjum gegn Íslandi á EM.

Gaman er að geta þessa að í liðakeppni sveigboga kvenn og berboga kvenna þá fóru báðir 8 liða úrslitaleikirnir fram á sama tíma á skotmarkið 7 og skotmarki 40. Astrid þurfti því að skjóta fyrst í sveigboga liðinu og svo skokka yfir á hinn hluta keppnisvallarins (um 50 metra) til þess að skjóta sínum örvum síðust í berboga kvenna liðinu. Sérstaklega vel gert hjá henni að fylla í liðið, og en betra að stelpurnar hefðu getað unnið leikinn í berboga gegn Bretlandi þar sem leikurinn var mjög jafn. Berboga stelpurnar voru 100% á því að Astrid væri að skjóta betur í berboganum í leiknum þrátt fyrir hlaupið. Þetta atvik vakti mikla athygli og ánægju meðal annarra landa á EM og Astrid fékk mikla jákvæða endurgjöf og klapp frá mótastarfsfólki og keppendum annarra landa, íþróttastjóri BFSÍ fékk hrós frá þjálfurum og liðsstjórum margra þjóða fyrir þetta og vildu óskað þess að sín lönd tækju Ísland sem fordæmi og gerðu það sama.

Astrid hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.