Aríanna Rakel Almarsdóttir endaði í 5 sæti í liðakeppni og 9 sæti í einstaklings keppni í U18 flokki á Evrópubikarmóti ungmenna sem haldið var í Catez Slóveníu í síðustu viku.
Í blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk+1kvk) þá keppti Aríanna ásamt liðsfélaga sínum Ísar Loga Þorsteinssyni á móti Hollandi í 8 liða úrslitum. Ísar og Aríanna stóðu sig flott í leiknum en hann endaði með sigri Hollands 143-137
Þetta er annað erlenda landsliðsverkefni sem Aríanna tekur þátt í en hún tók fyrst þátt á Norðurlandameistaramóti ungmenna árið 2022. Aríanna er svo áætluð til þátttöku á Evrópubikarmóti ungmenna í júní og NM ungmenna í júlí á þessu ári.
Evrópubikarmót ungmenna (EBU) var haldið í Catez í Slóveníu 1-6 maí. Sex keppendur voru að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu í trissuboga.
Ýmsar staðreyndir um mótið:
- 228 keppendur frá 24 Evrópuþjóðum voru að keppa á mótinu samtals ásamt 50 fylgdarfólki.
- Keppt er í U18 og U21 flokki í trissuboga og sveigboga
- Af 24 þjóðum unnu 13 þjóðir til verðlauna á mótinu.
- Ísland vann ein verðlaun á mótinu í trissuboga kvenna liðakeppni U21 og endaði í 11 sæti m.v. heildar medal standings úr öllum keppnisgreinum.
- Allir Íslensku keppendurnir komust í 16 liða og/eða einstaklings úrslit á mótinu.
- Ísland átti flesta keppendur allra landa í trissuboga U21 kvenna 8 manna úrslitum (þrjár frá Íslandi, tvær frá Ítalíu og ein frá Lúxemborg/Króatíu/Hollandi)
- Ísland var með 3 lið á mótinu:
- Trissuboga U21 kvenna lið (3 kvk) : Silfur
- Trissuboga U21 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 6 sæti
- Trissuboga U18 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 5 sæti
- Þetta er í annað sinn sem Ísland tekur þátt á EBU og er m.a. í fyrsta sinn á sem:
- Ísland vinnur til liðaverðlauna
- Ísland keppir um einstaklings verðlaun
- Karl keppir fyrir Ísland á EBU
- (það er mjög mikið af fyrsta árangri þar sem þetta er aðeins annað mótið sem Ísland tekur þátt)
- Íslandsmet sem slegin á mótinu:
- Landsliðsmet U21 mixed team útsláttarkeppni 147 (var 137)
- Landsliðsmet U21 mixed team undankeppni 1284 (var 1252)
- Trissuboga U21 kvenna útsláttarkeppni var jafnað (Þórdís 137-137)
- Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ
Næst á dagskrá hjá Íslenskum keppendum er Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu sem hefst 11 maí. Seinna Evrópubikarmót ungmenna verður svo haldið 3-11 júní.