Ari Emin Björk úr ÍF Akur Akureyri var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.
Í einstaklingskeppni sveigboga karla stóð Ari sig fínt í undankeppni EM með 542 stig sem dugði honum í 40 sæti, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Í blandaðri liðakeppni (efsti kk og kvk frá hverju landi í blönduðu liði, heitir mixed team á ensku) endaði Ari ásamt liðsfélaga sínum Valgerði í 11 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki) og þau mættu því Georgíu sem var í 6 sæti í undankeppni EM. 16 liða úrslitaleikurinn var vægast sagt jafn og okkar fólk var að standa sig frábærlega, en Georgía vann fyrstu umferðina með 1 stigs mun og tók forystuna 2-0, liðin jöfnuðu umferð 2 og staðan 3-1 í þriðju umferð náði Georgía svo að taka sigurinn í lotunni aftur með aðeins 1 stigi og tóku því sigurinn í leiknum 5-1. Jafn leikur sem var súrt að tapa með þetta littlum mun og hefði verið gaman að komast í 8 liða úrslit eða lengra, en sú varð ekki rauninn að þessu sinni. Það er ekki hægt að setja út á frammistöðu okkar fólks enda munurinn á milli liðana í leiknum nánast enginn og lukkan var bara Georgíu megin að þessu sinni.
Í liðakeppni sveigboga karla (3kk í liði) endaði Ari ásamt liðsfélögum Ragnari og Degi í 9 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki) og strákarnir mættu því Moldóvu sem var í 8 sæti í undankeppni í 16 liða úrslitum. Þar voru strákarnir okkar ekki að ná sér á strik á meðan Moldóva var on fire og tók sigurinn 6-0 og strákarnir enduðu því í 9 sæti á meðan Moldóva hélt áfram í 8 liða úrslit.
Ari hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.
