Ari Emin Björk í 6 sæti á NM ungmenna

Ari Emin Björk úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Í einstaklingskeppni á NUM var Ari sleginn út í 16 manna úrslitum af Robin Hansson frá Svíþjóð í mjög jöfnum leik sem endaði 6-4. Ari endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna.

Ari ásamt liðsfélögum sínum í Norðurlandaliði 2 unnu 6-2 gegn Norðurlandaliði 3 í 16 liða úrslitum. Þau mættu svo aðal Danska liðinu í 8 liða úrslitum þar sem að naumt var að Ari og liðsfélagar næðu sigrinum en Danmörk vann leikinn 5-3. Ari endaði því 6 sæti í liðakeppni.

Samantekt af niðurstöðum Ara á NUM:

  • 6 sæti sveigboga U21 liðakeppni á NM ungmenna
  • 9 sæti sveigboga karla U21 einstaklingskeppni á NM ungmenna

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.