Ari Björk tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á ÍM25 um helgina og fyrsta titil Akureyringa

Ari Emin Björk vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á Íslandsmeistaramótinu utandyra um helgina í Þorlákshöfn.

Ari mætti í úrslitaleik karla Ragnari Þór Hafsteinssyni úr BF Boganum í Kópavogi sem hafði unnið síðust þrjá Íslandsmeistaratitla sveigboga karla í röð. Þar sem Ari tók óvænt öruggann sigur 6-0 í leiknum! Lota 1 25-20, lota 2 24-18, lota 3 19-18. Enginn séns gefinn og Ari tók sigurinn 6-0, gullið og Íslandsmeistaratitilinn heim í fyrsta sinn í sveigboga karla fyrir ÍF Akur.

Ari keppti einnig í um titilinn óháð kyni, þar sem hann komst í úrslitaleikinn og mætti Marín Anítu Hilmarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi. Ari tók fyrstu lotuna 25-22 og 2-0 forystu. Marín tók aðra lotu leiksins 27-23 og jafnaði 2-2. Marín tók lotu 3 naumlega 24-23 og 4-2 forystu. Marín vann svo leikinn í fjórðu lotu 25-19 og tók sigurinn 6-2. Ari tók því silfrið óháð kyni á mótinu.

Samantekt af árangri Ara á ÍM25 utandyra: 

  • Íslandsmeistari Sveigboga karla – Ari Emin Björk – ÍFA
    • Fyrsti titill Ara í meistaraflokki og fyrsti titill félagsins í sveigboga karla. A new hope.
  • Silfur Sveigboga (óháð kyni) – Ari Emin Björk – ÍFA

Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramótið utandyra byrjaði í ofsaveðri en endaði í blíðu og nýtt þátttökumet á árinu á Íslandsmótum í meistaraflokki