Ari Björk náði alþjóðlegum þjálfararéttindum á vegum Olympic Solidarity og World Archery

Verklegi hluti World Archery Coaching Seminar Level 1 (alþjóðlegt þjálfaranámskeiði stigi 1) þjálfaranámskeiðsins var haldinn 9-13 júní. Námskeiðið var um 50 klukkustundir í heild yfir 5 daga frá 9-19 alla dagana. Þá er ekki verið að telja bóklega hluta námskeiðsins sem þarf að ljúka áður en námskeiðið hófst, ásamt World Anti Doping Agency námskeiði og ýmsu fleiru.

Ari Emin Björk lauk námskeiðinu, náði mati og náði prófinu, sem gefur World Archery Level 1 Coach alþjóðleg þjálfara réttindi til fjögurra ára.

Námskeiðið var haldið af Bogfimisambandi Íslands í samstarfi við World Archery (heimssambandið), með stuðningi frá Olympic Solidarity (Ólympíusamhjálpinni) og ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands)

Þjálfarakennarinn var Tim Swane frá Bretlandi, sem er aðal þjálfarakennari World Archery (heimssambandsins).

Mögulegt er að sjá nánar um námskeiðið hér í frétt frá Bogfimisambandi Íslands:

10 ná Alþjóðlegu þjálfarastigi 1 í samstarfi við Ólympíusamhjálpina