Anna Yu í 57 sæti á þátttökumesta ungmennamóti í sögu World Archery Europe

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir í BF Boganum í Kópavogi endaði í 57 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti ungmenna – EBU (European Youth Cup) sem haldið var í Catez Slóveníu  27 júlí – 3 ágúst. Mótið var þátttökumesta ungmennamót í sögu World Archery Europe.

Í undankeppni Evrópubikarmótsins skoraði Anna 494 stig og var í 75 sæti undankeppni.

Í 96 manna útsláttum (1/48 þar sem topp 8 sitja hjá) lék Anna gegn annarri Önnu sem er einnig örvhent, eins sjaldgæft og það er, Anna Kadlecova frá Tékklandi. Þar sem tékkneska örvhennta Anna tók sigurinn 6-0 og sló Íslensku örvhentu Önnu út. Íslenska Anna endaði því í 57 sæti í lokaniðurstöðum Evrópubikarmóts ungmenna í Slóveníu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Anna keppir utandyra á alþjóðlegu stórmóti ungmenna. Þetta var  einnig í fyrsta sinn sem að Ísland sendir sveigboga U18 konu á Evrópubikarmót ungmenna utandyra. Hún setti því staðalinn fyrir framtíðar kynslóðir til að bæta í aldursflokknum og keppnisgreininni, þar sem að þetta var síðasta ár Önnu í U18 flokki þar sem hún verður 17 ára eftir viku. Anna keppti einnig á EM U21 innandyra 2024.

Mótið sjálft var án vafa sögulegur viðburður í stærð og fjölda þátttakenda og ekki langt frá því að segja að mótið hafi verið á HM leveli, enda nokkrar þjóðir utan Evrópu sem kepptu á mótinu líka.

  • 317 keppendur á Evrópubikarmóti 2017 í Króatíu var áður stærsta ungmennamót  í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • 363 keppendur á EM ungmenna 2024 í Rúmeníu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • Stærsta HM í sögu íþróttarinnar 584 og það nær því ekki að vera stærra en stærsta HM. En var sambærilegt í fjölda þátttakenda og 2 HM á síðustu 20 árum.
  • 393 keppendur voru skráðir á Evrópubikarmótið í Slóveníu núna. Sem er því bæði stærra en öll Evrópubikarmót ungmenna sem haldin hafa verið og stærra en öll EM ungmenna sem haldin hafa verið hingað til.

Í heildina með þjálfurum/liðsstjórum voru yfir 500 þátttakendur á EBU í Slóveníu og slær einnig metið í heildarfjölda þátttakenda.

Anna hefur því lokið keppni á Evrópubikarmótinu. En mögulegt verður að lesa nánar um mótið eftir að því lýkur á vefsíðu Bogfimisambands Íslands hér:

Home