Anna Yu Evrópumeistari berboga U21

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu. Anna keppti bæði sveigboga og berboga á EM

Í einstaklingskeppni endaði Anna á því að þurfa að skjóta bæði undankeppni sveigboga og berboga á sama tíma. Hún ákvað því að einbeita sér að undankeppni sveigboga þar sem að það voru færri en 32 að keppa í berboga U21 kvenna, en fleiri en 32 í sveigboga U21 kvenna. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Anna skaut því aðeins tveim örvum í berboganum, fyrsta fór framhjá skormarkinu og önnur fór í fullkomið skor 10 í miðjuna á krossinum á miðju skífunnar. Það dugði Önnu til að komast áfram í gegnum undankeppni EM í berboga og hún einbeitti sér því að sveigboga það sem eftir var undankeppninnar.

Í undankeppni sveigboga var Anna að standa sig mjög vel og náði að halda sér í topp 20 eða hærra fyrsta fjórðunginn, en svo læddust inn ein og ein úps ör sem lækkuðu hana í 30 sæti eftir fyrsta helming með skorið 267, en gott skor og gott útlit fyrir að hún myndi vinna þátttökurétt í sveigboga kvenna U21 líka. En seinni umferðin var töluvert lakari 239 stig sem þýðir að Anna skoraði 506 og endaði í 34 sæti undankeppni EM, nálægt en ekki nógt til að komast í topp 32. Anna kláraði því keppni í sveigboga U21 kvenna einstaklinga í 34 sæti á EM.

Í einstaklingskeppni (útsláttarleikjum) berboga kvenna U21 mætti Anna því Lóu Margréti liðsfélaga sínum í 16 manna úrslitum EM. Stelpurnar voru greinilega staðráðnar í því að gera leikinn spennandi þar sem að þær skiptust á því að skora góðar og lakar umferðir og leikurinn endaði í bráðabana. Bara til að halda Íslensku áhorfendunum á tánnum 😂. Þar tók Lóa þó sigurinn með 8 á móti 5 og hélt því áfram í 8 manna úrslit, Anna endaði í 9 sæti á EM í berboga U21 kvenna einstaklinga.

Í liðakeppni sveigboga U21 mixed team (blandaðri liðakeppni). Voru Baldur og Anna í 13 sæti í undankeppni EM og mættu því Tyrklandi sem var í 4 sæti í 16 liða úrslitum (16 efstu liða halda áfram eftir undankeppni EM).

Leikurinn byrjaði á úpsi hjá okkar fólki og Tyrklandi tók fyrstu lotu 2-0. Næstu tvær lotur voru betri hjá okkar fólki en Tyrkirnir gerðu eilítið betur í báðum og tóku sigurinn 6-0 og slógu Ísland út sem endaði því í 9 sæti á EM í blandaðri liðakeppni sveigboga U21.

Í liðakeppni berboga kvenna U21 vann Íslenska liðið (Lóa, Anna Yu og Þórdís) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En stelpurnar áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.

Samantekt af árangri á EM:

  • Berboga undankeppni einstaklinga EM 10 sæti
  • Berboga lokakeppni einstaklinga EM 9 sæti
  • Sveigboga undankeppni einstaklinga EM 34 sæti
  • Sveigboga blönduð liðakeppni (mixed team) 9 sæti
  • Berboga Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
    • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
  • Sveigbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1017 stig
    • Baldur Freyr Árnason
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu