Anna María Alfreðsdóttir í ÍF Akur Akureyri var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.
Í undankeppni einstaklinga á EM í trissuboga kvenna endaði Anna með gott skor 562 stig sem dugði henni í 11 sæti í undankeppni einstaklinga á EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni einstaklinga á EM.
Anna mætti því í lokakeppni EM Kseniia Shkliar frá Úkraínu í 16 manna úrslitum. Leikurinn hjá Önnu var ekki hennar sterkasti, en það breytti svo sem ekki máli þar sem sú Úkraínska var on fire og skaut 12 tíur og 3 níur og gaf lítið færi á sér í leiknum. Anna var því slegin út af EM 147-138 og endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni.
Í trissuboga kvenna liðakeppni voru stelpurnar (Eowyn, Freyja og Anna) slegnar út af heimaþjóðinni Búlgaríu í undan úrslitum og enduðu því á því að taka bronsið á EM. Þriðja brons sem Ísland hefur unnið í röð í trissuboga kvenna.
Anna hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.



