Anna María Alfreðsdóttir í 9 sæti á EM

Anna María Alfreðsdóttir frá Akureyri átti gott EM í meistaraflokki þar sem hún endaði í 9 sæti í liða keppni, 17 sæti í mixed team og 33 sæti í einstaklingskeppni. Á síðasta EM utandyra árið 2022 endaði Anna í 17 sæti í einstaklingskeppni og langaði að hækka sig upp í að komast í topp 16 eða topp 8. En það gekk ekki í þetta sinn, en við höfum fullt traust á því að Anna mun ná því í framtíðinni 😉

Stelpurnar okkar voru slegnar út af EM í leik gegn Spáni í 16 liða úrslitum sem endaði 228-215. Stelpurnar okkar voru að skjóta mjög vel í leiknum, en áttu tvö feil skot. Ein af okkar stelpum var búin að vera að eiga við meiðsli og í fyrstu örinni í leiknum gaf öxlin sig og hún skaut framhjá og síðari örin var úps skot hjá öðrum liðsfélaga. Ef við setjum okkur að þessi 2 skot hefðu endaði í 10 þá hefðu stelpurnar okkar unnið leikinn og haldið áfram í 8 liða úrslit. Spánn endaði á því að taka silfur á EM í liðakeppni og okkar stelpur vermdu 9 sætið.

Anna stóð sig fínt í undankeppni EM með skorið 671 og komst inn á EM þrátt fyrir að það hafi verið mikil samkeppni í kvenna flokki.

Í fyrsta leik EM (útsláttarkeppni) í einstaklingskeppni mætti Anna Úkraínsku Kseniia Shkliar. Anna var ekki að ná sér á strik í leiknum, hún var ekki að skjóta illa en samt undir meðaltali og var bara ekki að ná að grúppa. Dagsformið var ekki að vinna með henni þann daginn, þannig er lífið ekki allir dagar eru góðir. Anna var því slegin út 144-136 og endaði því í 33 sæti á EM í einstaklingskeppni í þetta sinn (2026 verður hún í topp 8 😉)

Evrópumeistaramótið utandyra var haldið í Essen 7-12 maí síðastliðinn á Rhine-Ruhr svæðinu í Þýskalandi. Um 40 þjóðir og 400 þátttakendur voru á EM að þessu sinni. Hver þjóð má aðeins senda 6 karla og 6 konur í undankeppni EM og venjan hefur verið að Ísland hafi verið að senda nánast fullan kvóta keppenda í undankeppni EM. En þátttaka Íslands að þessu sinni var óvenju lág meðal karla og aðeins einn maður sem lagði för sína á mótið en fullt lið kvenna í trissuboga og sveigboga.