Anna Guðrún vinnur óvænt sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir úr BFB Kópavogi kom eins og þruma úr heiðskýru lofti og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á Íslandsmeistaramótinu innandyra í Ólympískum sveigboga í Bogfimisetrinu um helgina.

Á Íslandsmeistaramótum í bogfimi er keppt um þrjá einstaklingstitla (karla, kvenna og óháð kyni) og einn félagsliðatitil. Anna vann brons í kvenna og brons í félagsliðakeppni, en sýndi gífurlega takta um titilinn óháð kyni og náði óvæntum mjög erfiðum sigri sterkari andstæðingum, og yfir öllum!!

Íslandsmeistaratitill sveigboga: Bæði gull og brons úrslit enda í bráðabana og Anna vann óvæntan sigur og er Íslandsmeistari allra

Um Íslandsmeistaratitilinn (óháð kyni), “the main event” þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, voru gífurlega spennandi og líka óvæntar niðurstöður.

Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB komst í gull úrslitaleikinn nokkuð örugglega þó að Baldur Freyr Árnason hafi veitt honum góða mótspyrnu í undanúrslitum þar sem Ragnar tók 6-4 sigur í síðustu lotu leiksins og hélt því í gull úrslitin.

Það var þó ekki eins auðveld leið fyrir Önnu Guðrúnu Yu Þórbergsdóttir úr BFB sem mætti Ragnari í gull úrslitum.

Anna mætti í 16 manna úrslitum Karólínu Karlsdóttir úr sama félagi þar sem Anna vann örugglega 6-0 og hélt því í 8 manna úrslit.

Í 8 manna úrslitum mættust Anna og Akureyringurinn Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍFA þar sem leikurinn var mjög spennandi. Eva vann fyrstu lotuna 27-25 og tók 2-0 forystu í leiknum og endurtók það svo í annarri lotu 26-25 og leiddi því 4-0 í leiknum. Anna vann þriðju lotuna 27-26 og minnkaði muninn í 4-2 og stelpurnar jöfnuðu fjórðu lotu 25-25 og staðan því 5-3. Anna varð því að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, sem hún gerði með 26-24 lotu og leikurinn endaði því í jafntefli 5-5. Það þurfti því bráðabana til að ákvarða sigurvegarann og hvor héldi áfram í undanúrslit, Eva skaut góða 9 en Anna tók sigurinn með næstum fullkominni 10 í miðju kross skífurnnar.

Anna hélt því í undan úrslit þar sem hún mætti Marín Anítu Hilmarsdóttir úr BFB sem var verjandi titilhafi þar sem hún vann Íslandsmeistaratitilinn innandyra 2025 og var talin mun sigurstranglegri. Þar átti Anna leik lífs síns til dags og tók fyrstu tvær umferðir leiksins 26-28 og 29-28 og staðan í leiknum 4-0. Marín náði þriðju umferð 29-26 4-2, en Anna tók svo fullkomna umferð 10-10-10 náði sigrinum í lotunni 30-28 og því einnig sigrinum í leiknum 6-2.

Verulega óvæntar niðurstöður þar sem Íslandsmeistarinn Marín var með sterka frammistöðu, Anna náði bara ótrúlega góðum leik og tók verðskuldaðann sigur og hélt því í gull úrslitaleikinn á ÍM.

Gull úrslitaleikurinn á milli Önnu og Ragnars var ekki minna spennandi. Ragnar vann fyrstu lotuna 27-26 og tók því 2-0 forskot í leiknum um titilinn. Anna vann aðra lotu 27-23 og jafnaði leikinn 2-2. Ragnar tók þriðju lotu 27-25 og staðan 4-2. Þau jöfnuðu fjórðu lotu 27-27 og staðan 5-3 og aðeins ein lota eftir af leiknum. Anna varð að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn 5-5 og knýgja fram bráðabana um titilinn, sem hún náði með 27-21 lotu og jafnaði því leikinn 5-5.

Ein ör í bráðabana og sá sem hittir næst miðju myndi því ákvarða Íslandsmeistarann 2026. Ragnar skaut 9 og Anna skaut 10 og tók því Íslandsmeistaratitil allra ásamt því að taka sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ferlinum. Ekki amalegt að fyrsti Íslandsmeistaratitilinn sé sá erfiðasti til að vinna og að gera það á eins spennandi máta og raunin var.

Brons leikurinn var eins jafn og ekki minna spennandi en þar mættust Marín Aníta Hilmarsdóttir og Baldur Freyr Árnason bæði Kópavogsmenn úr BFB. Þau jöfnuðu fyrstu lotu 26-26 og staðan því 1-1. Þau skiptust svo á að vinna loturnar alltaf með littlum mun og brons leikurinn endaði einnig í jafntefli 5-5 og því þurfti einnig bráðabana til að ákvarða brons verðlaunahafann. Þar tók verjandi Íslandsmeistari Marín þó sigurinn með 10 á móti 6 frá Baldri og Marín tók því bronsið.

Nánari upplýsingar um árangur Önnu og almennt um Íslandsmeistaramótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands með því að smella hér fyrir neðan

Íslandsmeistaramót sveigboga Anna Guðrún tekur óvæntan sigur og sinn fyrsta titil í meistaraflokki