Anna Guðrún tvöfaldur Íslandsmeistari U21 sveigboga

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir átti frábært ÍM og vann 2 af 3 Íslandsmeistaratitlum í sveigboga U21 á Íslandsmeistaramóti U21 á laugardaginn og var aðeins bráðabana frá því að taka þriðja titilinn og ná fullu húsi titla.

Anna vann Íslandsmeistaratitil U21 kvenna í 6-0 í gull úrslitaleik gegn Evu Krístínu Sólmundsdóttur úr ÍF Akri Akureyri. Stelpurnar voru næstum jafnar í undankeppni ÍM U21, en Anna átti rosalega góðann leik með 27-28-28 umferðir og náði 6-0 sigri og Íslandsmeistaratitlinum í sveigboga U21 kvenna, Eva tók silfrið. Emma Rakel Björnsdóttir úr ÍF Akur tók brons leikinn gegn Karólínu Karlsdóttir úr BF Boganum 7-1.

Anna rétt missti af Íslandsmeistaratitili U21 óháð kyni í jafntefli og bráðabana 6-5 gegn liðsfélaga sínum Baldri Freyr Árnasyni. Þetta var mest spennandi leikur mótsins þau voru jöfn 4-4 í fjórðu lotu og jöfnuðu svo fimmtu og síðustu lotuna 26-26 og leikurinn endaði því í jafntefli 5-5 og því þurfti bráðabana til að ákvarða sigurvegara, 1 ör nær miðju vinnur. Baldur skaut 8 og opnaði dyrnar fyrir Önnu að taka sigurinn, en hún náði ekki að notfæra sér það og skaut 7, Baldur tók því sigurinn og titilinn í bráðabana með minnsta mögulega stiga mun 1 stigi á ör í bráðabana og Anna tók silfrið. Elías Áki Hjaltason úr BF Boganum tók bronsið gegn Evu Krístínu Sólmundsdóttir úr ÍF Akur.

Baldur vann Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða með Bogfimifélaginu Boganum í gull úrslitaleik gegn Íþróttafélaginu Akri á Akureyri þar sem lið Baldurs öruggann sigur 6-0, þó að littlu hafi munað í skori á liðinum í öllum lotum. BF Boginn lið 2 tók bronsið.

Heljarinnar vel gert hjá Önnu þó að mjóu hafi munað í öllum úrslitaleikjunum.

Íslandsmeistaramóti í meistaraflokki sveigboga verður á sunnudaginn 07.03.2026 og Anna er einnig skráð þar til keppni. En hvort að hún nær að endurtaka U21 árangurinn í meistaraflokki mun ráðast á morgun.