Anna Guðrún með 3 Íslandsmeistaratitla, 3 Íslandsmet, 1 Norðurlandamet og silfur og brons á NM ungmenna

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á ÍM ungmenna utandyra í Hafnarfirði 28 júni og NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí með mjög góðu gengi.

Anna vann alla 3 Íslandsmeistaratitlana á Íslandsmóti ungmenna þar sem hún sló einnig 2 Íslandsmet. Á NM ungmenna seinna i vikunni var Anna lengi vel efst í undankeppni einstaklinga á NM en endaði í 2 sæti eftir undankeppni mótsins. Íslenska liðið var efst í undankeppni og setti því Norðurlandametið þar sem að sveigbogi U21 Open er nýr flokkur á NM ungmenna, en stelpurnar okkar töpuðu svo gull úrslitaleiknum og Anna tók því silfrið í liðakeppni ásamt liðsfélögum sínum.

Í útsláttarkeppni NM tapaði Anna með naumum mun í undanúrslitum gegn Emelie Brun frá Danmörku 6-4 og Anna keppt því um bronsið á NM gegn Marianna Reynskor frá Færeyjum. Þar endaði brons úrslitaleikurinn jafn 5-5 og því þurfti bráðabana (ein ör nær miðju) til þess að ákvarða sigurvegara, Anna vann bráðabanann með 9 á móti 7 frá Færeysku og Anna tók því bronsið.

Stutt einföld samantekt af árangri Önnu Guðrúnar á þessum tveim vikum:

  • 3 Íslandsmet
  • 3 Íslandsmeistaratitla
  • 1 Norðurlandamet
  • 1 Silfur í liðakeppni á NM ungmenna
  • 1 Brons í einstaklingskeppni á NM ungmenna

Niðurstöður Önnu á NM ungmenna 2024:

  • Sveigbogi U21 Open liðakeppni – Silfur
  • Sveigbogi kvenna U21 Open einstaklingskeppni – Brons

Norðurlandamet sem hún setti á NM ungmenna:

  • Sveigbogi U21 Open liðakeppni 1248 stig. Metið var áður 0 stig (nýr flokkur)
    • Halla Sól Þorbjörnsdóttir BFB
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB
    • Stella Wedholm Albertsdóttir BFB

Íslandsmet sem hún setti á NM ungmenna:

  • Sveigboga U21 Open NUM landsliðsmet – 1248 stig
    • Halla Sól Þorbjörnsdóttir BFB
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB
    • Stella Wedholm Albertsdóttir BFB

Íslandsmet sem hún setti á ÍM ungmenna:

  • Sveigbogi U18 kvenna 500 stig undankeppni. Metið var áður 447.
  • Sveigboga U18 félagslið undankeppni – BFB – 546 stig (nýtt met)
      • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB
      • Stella Wedholm Albertsdóttir BFB

Íslandsmeistaratitlar sem Anna vann á ÍM ungmenna:

  • Sveigbogi kvenna U18 einstaklinga
  • Sveigbogi U18 einstaklinga (óháð kyni)
  • Sveigbogi U18 félagsliðakeppni

Frekari upplýsingar um mótin er hægt að finna í fréttum Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.

Kópavogur og Hafnarfjörður sýndu yfirburði á ÍMU í bogfimi utandyra og tóku 27 titla og 7 Íslandsmet