Alís Janey í 9 sæti á NM ungmenna í Svíþjóð

Alís Janey Elmarsdóttir í Íþróttafélginu Akri á Akureyri endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Alís var í 19 sæti í undankeppni mótsins í sveigboga U21 kvenna og mætti í 32 manna úrslitum Sofie Sultan frá Svíþjóð. Þar sló sú Sænska Alís út 6-0 og Alís endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni NUM 2025

Í liðakeppni léku Alís og liðsfélagar, Ari Björk ogFreydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir, í liði Íslands gegn liði Noregs í 16 liða úrslitum. Þar tók Norðmenn sigurinn í leiknum 6-0, slógu Ísland út og Alís og liðsfélagar enduðu því í 9 sæti í liðakeppni á NUM.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Alís Janey Elmarsdóttir – 17 sæti – sveigboga U21 kvenna – ÍFA
  • Alís Janey Elmarsdóttir – 9 sæti – Sveigboga U21 lið (Ísland)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons