Alfreð með fyrsta öldunga Íslandsmeistaratitilinn

Alfreð Birgisson tók sinn fyrsta og annan Íslandsmeistaratitil í 50+ á Íslandsmóti öldunga í Bogfimisetrinu í dag. En Alfreð er nýlega orðinn fimmtugur og þetta var því í fyrsta sinn sem hann gat keppt um 50+ Íslandsmeistaratitilinn og hann hefur lengi beðið eftir því.

Íslandsmeistaratitill karla 50+ einstaklinga

Alfreð mætti í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil 50+ karla, fyrrum heimsmethafa, og Íslandsmeistara Albert Ólafssyni úr BFB Kópavogi. Alfreð sýndi enga miskun og vann gull úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitil 50+ karla nokkuð örugglega í 143-138 og tók því titilinn heim til Akureyrar og sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í öldungaflokkum.

Íslandsmeistaratitill einstaklinga 50+ (óháð kyni)

Alfreð mætti svo aftur í gull úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil 50+ óháð kyni honum Albert Ólafsson. Þar endaði gull úrslitaleikurinn þó mun jafnari, en Alfreð tók á endanum sigurinn með 1 stigi 139-138. Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir tók bronsið.

Heljarinnar vel gert hjá Alfreð, hann er loksins orðinn full-fullorðinn í aldri, þó hann verði alltaf ungur og ferskur í anda 😉

Íslandsmeistaramóti í meistaraflokki trissuboga verður á sunnudaginn 22.03.2026 og Alfreð er einnig skráður þar til keppni. En hvort að hann nær að endurtaka 50+ árangurinn í meistaraflokki og verja Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki frá síðasta ári mun ráðast á morgun.