Alfreð Birgisson úr ÍF Akur Akureyri var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu. En gaman er að geta þess að Alfreð varð fimmtugur á meðan á mótinu stóð og hann var elsti keppandi Íslands á mótinu (en samt 30 árum yngri en elsti keppandi Íslands á EM í sögu íþróttarinnar, þannig að Alfreð á nóg eftir).
Í einstaklingskeppni trissuboga karla stóð Alfreð sig ágætlega í undankeppni EM með 568 stig sem dugði honum í 29 sæti. Alfreð var ekki ánægður með frammistöðuna en 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni einstaklinga á EM þannig að það dugði.
Alfreð mætti því Laszlo Szijarto frá Ungverjalandi í 32 manna úrslitum sem var í 4 sæti undankeppni EM. Sá Ungverski gaf ekkert færi á sér og skoraði fullkomið skor 150, ekki hægt að vera ósáttur með tap þegar að andstæðingurinn gefur ekkert færi á sér, en Alfreð var einnig að skora vel undir sínu normi í leiknum og tók sér göngutúr eftir á til að formatta diskinn Það virðist vera eitthvað trend að myndast að þegar Alfreð keppir á móti einhverju alþjóðlega þá skora þeir fullkomið eða nánast fullkomið skor. En Alfreð var því sleginn út í 32 manna úrslitum og endaði í 17 sæti á EM.
Alfreð og Eowyn kepptu í blandaða liði Íslands á EM (mixed team 1kk+1kvk). Þau enduðu í 8 sæti í undankeppni EM þar sem 16 efstu lið halda áfram í lokakeppni EM.
Í lokakeppni EM (útsláttarleikjum) í blandaðri liðakeppni var Ísland á endanum slegið út í 8 liða úrslitum af gífurlega sterku liði Danmerkur (sem var einnig efsta liðið í undankeppni EM), þar sem að Danir settu heimsmet í leiknum á móti Íslandi með 159 stig. Leikur sem maður getur vel sætt sig við að tapa enda heimsmet ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi. Ísland endaði því í 7 sæti á EM. Danir komust á endanum í gull úrslit þar sem þeir töpuðu 157-155, en samt flott frammistaða hjá þeim á mótinu, að venju enda Danmörk ein sterkasta trissuboga þjóð í heimi.
Frábært gengi var í trissuboga liðakeppni karla, strákarnir voru í 7 sæti í undankeppni EM og liðið var á endanum slegið út af heimsmeisturum Frakklandi í 8 liða úrslitum. Strákarnir okkar náðu fullkomnu skori í fyrstu umferð, en Frakkarnir gáfu ekkert færi á sér í leiknum enda aðeins einu stigi frá fullkomnu skori og því að jafna heimsmetið í leiknum gegn Íslandi. Strákarnir okkar voru því slegnir út og enduðu því í 6 sæti á EM 2026 og Frakkar unnu sig á endanum upp í gull úrslitaleikinn á föstudaginn.
Gaman er að geta þess að strákarnir okkar slógu landsliðsmetið í trissuboga karla sem er 12 ára gamalt frá því að Ísland vann fyrst þátttökurétt á HM árið 2014 í trissuboga karla. Það met var 226 stig og strákarnir slógu það því með einu stigi.
Alfreð hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.


