Alfreð Birgisson Bikarmeistari trissuboga utandyra 2024

Síðasta Bikarmóti í Íslandsbikarmótaröð BFSÍ utandyra 2024 var að ljúka í dag. Alfreð Birgisson kom sterkur inn og tók nokkuð öruggann sigur í trissuboganum utandyra. En Alferð tryggði sér einni Bikarmeistaratitilinn innandyra 2024 og því mögulegt að kalla hann óvéfengjanlegan Bikarmeistara 2024 í sinni grein.

Alfreð vann titilinn í trissuboga nokkuð örugglega með 57 stiga mun með 1303 stig á móti 1246 sem Þórdís Unnur Bjarkadóttir í BFB sem var í öðru sæti. Á síðustu tveim árum (23-24) vann Alfreð 3 af fjórum Bikarmeistaratitlum og 3 af fjórum Íslandsmeistaratitlum karla. Sem er hæsta sigurhlutfall karla á titlum í sinni keppnisgrein á síðustu tveim árum.

Mögulegt er að lesa nánar í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Mjótt á munum á Bikarmeisturum 2024 eftir síðasta Bikarmót í Íslandsbikarmótaröð BFSÍ utandyra