Alexandra Kolka Stelly Eydal í 9 sæti á NM ungmenna

Alexandra Kolka Stelly Eydal úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Alexandra var slegin út af NUM í 32 manna úrslitum gegn Jennifer Isabella Johnson frá Danmörku 6-2 og endaði í 17 sæti í einstaklingskeppni. Hún var svo slegin út í liðakeppni ásamt liðsfélögum sínum af Svíþjóð í 16 liða úrslitum 6-0 og endaði í 9 sæti í liðakeppni á NUM.

Samantekt af niðurstöðum Alexöndru á NUM:

  • 9 sæti sveigboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
  • 17 sæti sveigboga kvenna U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.