Albert Ólafs þrefaldur Íslandsmeistari 50+ sveigboga

Albert Ólafsson kom sá og sigraði alla þrjá Íslandsmeistaratitla sveigboga 50+ á Íslandsmeistaramóti öldunga á laugardaginn og setti Íslandsmetið í félagsliðakeppni 50+

Albert vann Íslandsmeistaratitil 50+ karla í 6-0 gull úrslitaleik gegn liðsfélaga sínum Oliver Robl.

Albert lenti aftur á móti Oliver Robl um Íslandsmeistaratitil 50+ óháð kyni og vann gull úrslitaleikinn aftur 6-0 og tók Íslandsmeistaratitil númer 2.

Albert og Oliver voru einnig lið Bogfimifélagsins Bogans á mótinu og þeir settu Íslandsmetið í 50+ félagsliðakeppni með skorið 830, sem var einnig hæsta skor félagsliða 50+ á ÍM öldunga og þeir tóku því einnig Íslandsmeistaratitil félagsliða.

Þrír titlar og Íslandsmet, ekki amalegt á einum degi.