Á þriðja tug Íslendinga á leið á EM í bogfimi, Ísland líklegt til verðlauna

Evrópumeistaramótið innandyra í bogfimi verður haldið í Plovdiv Búlgaríu 15-21 febrúar 2026 (köllum það EM-I til styttingar í fréttinni)

28 Íslendingar eru að leggja för sína á EM-I og talið líklegt að Ísland komi með nokkur verðlaun heim eins og síðustu tvö EM-I sem haldin voru í Varazdin Króatía 2024 og Samsun Tyrkland 2025, þar sem Ísland tók í báðum tilfellum 5 verðlaun. Mögulegt er að finna lista yfir alla fyrri verðlaunahafa á HM/EM í bogfimi hér:

Verðlaunahafar HM/EM…

Þetta verður einnig í fyrsta sinn sem það verður blönduð liðakeppni á EM-I (1kk og 1kvk). Keppt hefur verið í því fyrirkomulagi í utandyra markbogfimi um töluvert skeið núna, og hefur verið á Ólympíuleikum frá 2016, en var verið að bæta þeirri grein við fyrir innandyra markbogfimi í fyrsta sinn á heimsþinginu 2025 í Kóreu. Þar sem þetta er líklega fyrsta alþjóðlega mót innandyra sem haldið er síðan að reglur um viðbót mixed team tók gildi munu flest lið sem verða hæst í þeirri grein á EM-I að öllum líkindum setja heims- og Evrópumetin í mixed team innandyra.

Mögulegt verður að fylgjast með niðurstöðum mótsins á https://www.ianseo.net/Details.php?toId=26689

Förum mjög stutt yfir hvert lið fyrir sig til gamans með smá info-i af fyrra gengi.

EM meistaraflokkur innandyra

Sveigboga karla lið (Recurve men team):

  • Ari Emin Björk (fyrsta sinn á EM-I í meistaraflokki)
  • Dagur Örn Fannarsson
  • Ragnar Þór Hafsteinsson (fyrsta sinn á EM-I)

Sveigbogi karla hefur verið meðal veikari greina Íslands alþjóðlega um nokkuð skeið. Ísland vann fyrst þátttökurétt á EM-I 2024 í sveigboga karla einstaklingskeppni. Vonin er að allir strákarnir komist áfram eftir undankeppni EM og óska staða ef að liðið kemst í 8 liða úrslit.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni EM-I: 7 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 7 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 18 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 17 sæti EM-I Tyrkland 2025

Sveigboga kvenna lið (Recurve women team): 

  • Marín Aníta Hilmarsdóttir (reynslubolti)
  • Valgerður E. Hjaltested (reynslubolti)
  • Astrid Daxböck (reynslubolti)

Vel hefur gengið hjá sveigboga kvenna liðinu okkar á EM-I á síðustu árum. Liðið tapaði brons úrslitaleiknum árið 2024 í bráðabana eftir jafntefli gegn Moldóvu. Þannig að lið sem er vel vert að fylgjast með og gæti á góðum degi náð verðlaunum fyrir Ísland.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni: 4 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 4 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 17 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 9 sæti EM-I Króatía 2024

Trissuboga karla lið (Compound men team):

  • Alfreð Birgisson (reynslubolti)
  • Dagur Örn Fannarsson
  • Natan Eir Skov Jenssen (fyrsta sinn á EM-I)

Trissuboga karla lið Íslands hefur ekki verið það sterkasta en það eru nokkrir einstaklingar að koma upp úr U21 flokkum sem munu styrkja liðið verulega á næstu árum. Þannig að væntingar fyrir trissuboga liðið eru lágar 2026 en fara hækkandi á næstu árum. En gengið í einstaklingskeppni gæti verið fínt og gengi Alfreðs var gott á HM og kæmi ekki á óvart ef að hann myndi stinga sér í topp 16 eða 8 á góðum degi.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni EM-I: 6 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 6 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 22 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 17 sæti EM-I Tyrkland 2025

Trissuboga kvenna lið (Compound women team): 

  • Eowyn Marie Mamalias (m.a. topp 8 á Evrópubikarmóti 2025)
  • Anna María Alfreðsdóttir (m.a. 4 sæti EM-I U21 2022)
  • Freyja Dís Benediktsdóttir (m.a. 4 sæti EB U21 2023)

Trissuboga kvenna liðið er nokkuð sterkt og liðið hreppti bronsið síðust tvö EM-I og er almennt í top 10 á Evrópulista og topp 20 á heimslista utandyra. Stelpurnar eru allar frekar ungar, efnilegar og nýlega komnar upp í meistaraflokk og margar fleiri yngri á uppleið. Því má gera ráð fyrir að trissuboga kvenna lið Íslands verði sterkt og muni styrkjast verulega á næsta áratug.  Væri gaman að komast í gull úrslit á EM núna. Verður spennandi að fylgjast með

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni: 3 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 3 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 11 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 9 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025

Berboga karla lið (Barebow men team):

  • Izaar Arnar Þorsteinsson (m.a. best 9 sæti á EM-I 2024)
  • Helgi Már Hafþórsson (fyrsta sinn á EM-I)
  • Sölvi Óskarsson (Var lengst af í topp 10 í undankeppni EM-I 2025)

Berboga karla lið Íslands hefur verið að sveiflast, þeir töpuðu bronsinu á EM-I 2024 eftir jafntefli og bráðabana við Serbíu og voru í 7 sæti 2025 eftir að vera slegnir út af Evrópumeisturum Ítalíu í 8 liða úrslitum. Lið sem gæti komið með verðlaun heim, ef dagsformið er gott og allt gengur eftir. Verður spennandi lið að fylgjast með.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni EM-I: 4 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 4 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 20 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 9 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025

Berboga kvenna lið (Barebow women team): 

  • Guðbjörg Reynisdóttir (5 sæti best á EM-I)
  • Heba Róbertsdóttir (3 sæti best á EM-I U21, fyrsta EM-I í meistaraflokki)
  • Astrid Daxböck

Berboga kvenna liðið er nokkuð sterkt og vann bronsið á EM-I í Tyrklandi 2025, á móti Tyrklandi á heimavelli, þar sem leikurinn endaði í jafntefli og Ísland vann í bráðabana. Stelpurnar töpuðu bronsinu á móti Serbíu 2024. Þannig að lið sem gæti náð góðu gengi og verður spennandi að fylgjast með.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni: 4 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 3 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 10 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 5 sæti EM-I Slóvenía 2022

EM U21 innandyra

EM-I í U21 flokki er einnig haldið á sama tíma, þó að ekki sé leyfilegt að keppa í báðum aldursflokkum á sama mótinu.

Sveigbogi karla U21 (Recurve men U21):

  • Baldur Freyr Árnason

Aðeins einn keppandi frá Íslandi og því ekki lið. Baldur vann silfur á síðasta EM í berboga og er að færa sig um keppnisgrein yfir í sveigboga en keppir í báðum greinum.

  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 26 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 17 sæti EM-I Tyrkland 2025

Sveigboga kvenna U21 (Recurve women U21): 

  • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir

Anna er einnig ekki með lið, en gæti náð góðum árangri ef hún lendir í góðu dagsformi. Það verður einnig í mixed team í fyrsta sinn á EM-I sem Anna og Baldur munu keppa í.

  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 22 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 17 sæti EM-I Króatía 2024

Trissuboga karla lið U21 (Compound men team U21):

  • Ragnar Smári Jónasson (Vann m.a. brons á EM-Field 2025 en besta á EM-I er 7 sæti)
  • Magnús Darri Markússon (framtíðar stjarna á uppleið)
  • Ísar Logi Þorsteinsson (snýr aftur eftir hlé)

U21 Trissuboga karla lið Íslands hefur verið að ná nokkuð góðum loka niðurstöðum og var ekki langt frá því að taka bronsið, en töpuðu brons úrslitaleiknum gegn Króatíu 2025 í Tyrklandi. Þannig að það er alveg inn í myndinni að strákarnir gætu komið heim með fyrstu verðlaun Íslands í trissuboga U21 flokki liða og/eða einstaklingskeppni. Spennandi flokkur að fylgjast með.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni EM-I: 4 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 4 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 8 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 7 sæti EM-I Tyrkland 2025

Trissuboga kvenna lið U21 (Compound women team U21): 

  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir (reynslubolti með mörg verðlaun á ýmsum U18/U21 mótum)
  • Sóldís Inga Gunnarsdóttir (stjarna á uppleið)
  • Eydís Elide Sartori (stjarna á uppleið)

U21 Trissuboga kvenna liðið er nokkuð sterkt og talið vænlegt til verðlauna, og U21 kvenna liðið oftast verið sterkara en U21 karla liðið. En fyrir tilviljun (eða óheppni) síðustu 3 EM-I í röð lent á móti Ítalíu í 8 liða úrslitum og Ítalía alltaf náð sigrinum og haldið í gull/brons úrslit. En Ísland hefur keppt um brons í einstaklingskeppni U21 kvenna árið 2022. Stelpurnar tóku á EM-I 2025 bæði U18 heims- og Evrópumetin innandyra, en ná ekki að bæta það í ár þar sem þær eru ekki allar U18 lengur. Vonandi verður þetta árið sem stelpurnar komast í gull eða brons úrslitaleikinn í liðakeppni, eða einhver þeirra kemst aftur í einstaklings gull/brons úrslit. Allavega flokkur sem verður spennandi að fylgjast með.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni: 5 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 5 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 12 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 4 sæti EM-I Slóvenía 2022

Berboga karla lið U21 (Barebow men team U21):

  • Baldur Freyr Árnason (silfur einstaklinga 2025, brons 2024)
  • Henry Snæbjörn Johnston
  • Ragnar Smári Jónasson

Berboga karla U21 lið Íslands hefur verið nokkuð farsælt, vann gull 2024 og tapaði gullinu í bráðabana gegn heimamönnum í Tyrklandi 2025. Þeir hafa einnig unnið til tveggja einstaklingsverðlauna brons 2024 og silfur 2025. Teljum líklegt að Ísland komi með verðlaun heim í greininni eins og síðustu ár.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni EM-I: 1 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 1 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 3 sæti EM-I Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 2 sæti EM-I Tyrkland 2025

Berboga kvenna lið U21 (Barebow women team U21): 

  • Lóa Margrét Hauksdóttir (Silfur einstaklinga EM-I 2024)
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir (fyrsta sinn í berboga á EM-I
  • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir (fyrsta sinn í berboga á EM-I)

Berboga kvenna U21 liðið hefur verið nokkuð farsælt og vann silfur 2024, ásamt því að stelpurnar hafa nælt í brons og silfur í einstaklingskeppni 2024/2025. Teljum góðar líkur á því að liðið komi einnig heim með verðlaun af EM-I í Búlgaríu 2026.

  • Besta niðurstaða liðs í undankeppni: 2 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta lokaniðurstaða liðs eftir úrslitaleiki EM-I: 2 sæti EM-I Króatía 2024
  • Besta niðurstaða einstaklings í undankeppni EM-I: 4 sæti EM-I Króatía 2024 og Tyrkland 2025
  • Besta niðurstaða einstaklings eftir úrslitaleiki EM-I: 2 sæti EM-I Króatía 2024

Annað

Gummi Guðjóns íþróttastjóri BFSÍ er team manager og coach fyrir hópinn. Margir af keppendum Íslands á mótinu eru einnig afreksþjálfarar og munu aðstoða Gumma þegar að þeir eru ekki að keppa sjálfir í sínum keppnisgreinum og fá coaches upgrade pass þegar skipulagið er ljóst hverju sinni.

Hannes Bjarni Hannesson sjúkraþjálfari hjá Eflingu á Akureyri mun halda okkar fólki mjúku, ánægðu (þó að það sé stundum vont) og tilbúinn með teipið ef einhver kvartar (teipið fyrir vöðvana ekki munninn hehe)

Við munum gera okkar besta til að birta fréttir og efni um Evrópumeistaramótið á meðan á því stendur. En áherslan í vikunni á meðan á mótinu stendur verður alltaf á keppendurna, mótið sjálft og keppnina, og þá getur verið að fréttafluttningur mæti afgangi. Enda Ísland að skipa 16 liðum með 32 einstaklings þátttakendur skráða, og því verður mikið að gera hjá okkar fylgdarmönnum í ferðinni. En okkar fólk mun vafalaust vera virkt á sínum samfélagsmiðlum á meðan á mótinu stendur og birtar verða ítarlegar fréttir eftir að mótinu lýkur.

Myndir á smugmug BFSÍ verða hér