Valgerður E. Hjaltested í 9 sæti á EM

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested í BF Boganum í Kópavogi endaði í 9 sæti á EM ungmenna í Bogfimi í Lilleshall Bretlandi í dag á EM.

Valgerður keppti með sveigboga kvenna landsliðinu ásamt Höllu Sól Þorbjörnsdóttir og Marín Anítu Hilmarsdóttir úr sama félagi. Stelpurnar töpuðu 6-0 gegn Austurríki í 16 liða úrslitum EM og enduðu því í 9 sæti á EM. Stelpurnar slóu einnig bæði fullorðins og U21 landsliðsmet í undankeppni mótsins  (hæsta skor sem U21 landslið hefur skorað á alþjóðlegu móti til dags), skorið var 1526 en stelpurnar skoruðu 1581.

Valgerður keppti einnig í einstaklingskeppni á mótinu þar sem hún var í 41 sæti í undankeppni mótsins og mætti Lucia Ibanez Romero frá Spáni í fyrsta útslætti í lokakeppni mótsins, þar sem leikar enduðu 6-2 fyrir þeirri Spænsku. Leikurinn var samt mjög jafn og aðeins 1 stigs munur á milli þeirra i flestum umferðu. Valgerður endaði því í 33 sæti í einstaklingskeppni á mótinu.

Þetta er fyrsta árið sem Valgerður keppir á Alþjóðlegum stórmótum með bæði ungmenna landsliðinu og landsliðinu Valgerður var meðal annars í 5 sæti á EM ungmenna innandyra og 9 sæti á EM innandyra í byrjun ársins, í 17 sæti á EM utandyra í Munich með sveigboga kvenna liðinu og tók brons verðlaun einstaklinga á Norðurlandameistaramóti Ungmenna. Nokkuð gott start á bogfimiferlinum hennar.

Almennt um mótið

Mögulegt er að finna myndir af mótinu hér:

BFSÍ Smugmug

Archery GB Smugmug

Word Archery Europe Smugmug

Mögulegt er að fylgjast með úrslitum mótsins í heild sinni á ianseo.net

Íslensku keppendurnir á EM ungmenna fyrir BFSÍ (Bogfimisamband Íslands) eru eftirfarandi:

  • Anna María Alfreðsdóttir – ÍF Akur Akureyri
  • Eowyn Marie Mamalias – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
  • Freyja Dís Benediktsdóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
  • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – BF Boginn Kópavogi
  • Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Halla Sól Þorbjörnsdóttir – BF Boginn Kópavogi

Evrópumeistaramót ungmenna 2022 er haldið í Lilleshall Bretlandi, sem er eitt af þrem National Training Centers í landinu. Mikil hitabylgja var áður en mótið hófst og hitastig fór allt upp í 40°, en þegar mótið hófst hafði hitabylgjan gengið yfir að mestu og hiti var almennt yfir 20° með regnskúrum á milli og litlum vindi.

300 keppendur úr 30 Evrópuþjóðum eigast við á mótinu í Bretlandi. Af þeim eru 7 keppendur frá Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í EM ungmenna utandyra í bogfimi, en fyrst var miðað á þátttöku á EM ungmenna utandyra 2020 en því móti var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.