Úrslit úr International flokkum

Livestream af gull medalíu keppnum í International hluta Íslandsmótsins innanhúss 2019 verður sýnt live á youtube eftir skamma stund

6 færeyjingar komu og tóku þátt á Íslandsmeistaramótinu núna, eins og sést á fyrir greinum þar sem fjallað er um að Færeyjar unnu Ísland 229-225 í liðakeppninni (urrrrr)

Íslandsmeistaramótin í bogfimi eru opin fyrir alþjóðlegri þátttöku, en þar sem þeir geta ekki tekið þátt í lokakeppni (útsláttarkeppni) um Íslandsmeistarartitil er settur upp sér “International” Útsláttarkeppni á mótinu sem þeir geta einnig tekið þátt í.

International einstaklingskeppninni var að ljúka og Færeyjingarnar áttu trissubogaflokkinn alveg með 3 af 4 í efstu 4 sætunum. Oddmar komst einnig í semi finals en trissuboga Jógvan datt út í fyrsta útslætti og sveigboga Jógvan í quarter finals.

Hægt er að finna skorin og heildarniðurstöður mótsins á ianseo.net og hægt að skoða livestream video af viðburðinum á https://www.youtube.com/channel/UCyslF-n8Fh5zwqDLdBVzgvg

Jógvan below

Oddmar below

Nikkel below

Jóannes below.

Jógvan below

And Kaj below

Hérna er liðið sem vann okkur, og allir í semi finals með Carsten.

Einnig koma líklega 4 Skotar á Íslandsmótið utanhúss á Stóra Núpi í Júlí til að keppa við okkur með 2 mixed teams.