Sigurröð Haraldar í Skaust brotin, náði ekki titilinum utandyra þriðja árið og þurfti að sætta sig við annað sæti eftir jafnan gull úrslitaleik á Íslandsmeistaramótinu utandyra um helgina

Haraldur Gústafsson í Skotfélagi Austurlands (Skaust) vann Íslandsmeistaratitlana utandyra tvö ár í röð (2020 og 2021) en þurfti að sætta sig við annað sætið 2022 eftir 6-4 tap og harða baráttu gegn Oliver Ormar Ingvarssyni úr BF Boganum í Kópavogi í jöfnum úrslitaleik á Íslandsmeistaramótinu utandyra um helgina.

Það var, er og verður mikill bardagi milli Haraldar og Olivers um titilinn. Á Íslandsmeistaramótinu í fyrra var bardaginn um Íslandsmeistaratitilinn einnig á milli Olivers og Haraldar. Þar endaði úrslitaleikurinn jafn 5-5 og þurfti bráðabana til þess að ákvarða sigurvegara (einni ör skotið, sá sem hittir næst miðju vinnur). Oliver og Haraldur skutu báðir ör nákvæmlega jafn langt frá miðju og því þurfti að endurtaka bráðabanann, þar hafði Haraldur betur. Haraldur þurfti einnig að sætta sig við silfrið innandyra í mars þar sem Ragnar Þór Hafsteinsson í BF Boganum hafði betur í gull úrslitaleiknum. Við gerum þó ráð fyrir að Haraldur taki titilinn á Íslandsmeistaramótinu í Víðavangsbogfimi sem haldið verður á Austurlandi síðar á árinu.

Georg Elfarsson í BF Hróa Hetti í Hafnarfirði tók bronsið gegn Guðmundi Erni Guðjónssyni í BF Boganum. Leikurinn endaði 6-4 í óvenjulega harðri baráttu og einum “óvenjulegasta” úrslitaleik í manna minnum.

Haraldur Gústafsson tók bronsið í kynlausri keppni 6-4 gegn Astrid Daxböck úr BF Boganum í Kópavogi. Kynlaus keppni er ný viðbót til að greiða aðgengi kynsegin einstaklinga til þátttöku í íþróttinni og tækifæri fyrir keppni milli kvenna og karla. Oliver Ormar Ingvarsson og Marín Aníta Hilmarsdóttir bæði í BF Boganum mættust í gull úrslitaleiknum þar sem Marín tók sigurinn.

Íslandsmeistarar karla

Íslandsmeistaramótið var haldið á Hamranesvelli í Hafnarfirði 9-10 júlí. Veðrið á laugardeginum þegar að trissuboga og berboga flokkar kepptu var með því versta sem sést hefur á móti á Íslandi. Stormur og rigning fyrri part dagsins sem skánaði seinni partinn. Öll skotmörkin fuku niður í æfingaumferðum og það brotnuðu örvar hjá nokkrum keppendum. Undankeppni trissuboga og berboga var frestað svo að mögulegt væri að festa skotmörkin almennilega og bjarga þeim keppendum um örvar sem vantaði örvar upp á.

Það orsakaði mikla tímatöf í skipulagi mótsins sem var þegar þétt setið. Ekki var mögulegt að fresta mótinu til sunnudags þar sem ekki allir keppendur komust á þeim degi og búið var að auglýsa mótið á laugardeginum. Til að koma því fyrir að mótið gæti verið haldið var undankeppni stytt í 3 umferðir í stað 12 og tíminn til að skjóta örvunum var lengdur til að gefa keppendum færi á því að geta skotið örvunum. Sem betur fer lægði lítillega seinni hluta dags þegar að úrslitaleikirnir voru í trissuboga og berboga. Til samanburðar við storminn á laugardeginum var veðrið var frábært á sunnudeginum þegar að sveigbogaflokkar kepptu, en þó samt einhver vindur og rigning sem setti strik í skorin.