Nói Barkarsson Íslandsmeistari innandyra annað árið í röð

Nói Barkarsson í Bogfimifélaginu Boganum vann Íslandsmeistaratitilinn á Íslandsmeistaramóti innandyra í bogfimi í dag. Nói átti þegar titilinn frá árinu 2020 og er einnig Íslandsmeistari utandyra 2021. Nói jafnaði einnig U21 Íslandsmetið í undanúrslitum á mótinu, en hann átti það sjálfur frá Íslandsmeistaramótinu innanhúss 2020

Nói keppti í gull leiknum við Alfreð Birgisson úr Íþróttafélaginu Akri og sigraði þar með naumum mun 141-140. Þetta var jafnasti gull leikur dagsins og lítið sem skar keppendurnar að. Fyrir síðustu umferðina var Nói einu stigi undir Alfreð 113-112 sem hljómar ekki eins og mikið en getur verið fjall að klífa í trissubogaflokki þar sem allir keppendur hitta almennt bara 10 eða 9. En Nói náði að snúa því við í 141-140 sigur og varði stöðu sína sem titilhafi.

Þorsteinn Halldórsson úr ÍF Akur tók brons leikinn gegn Albert Ólafssyni úr Bogfimifélaginu Boganum á mótinu.

Íslandsmeistaramótið er haldið 26-27 nóvember 2021 í Bogfimisetrinu Dugguvogi 2, Reykjavík. Keppt var í trissuboga og berboga flokkum í dag og á sunnudaginn mun keppendur í sveigboga keppast um sína titla.

Á Íslandsmeistaramótum er keppt í þrem bogaflokkum, trissuboga, berboga og sveigboga. Flestir keppendur keppa aðeins í einum bogaflokki og hægt að hugsa um muninn á milli þeirra svipað og  handbolta, körfubolta og blak. Þetta eru allt boltaíþróttir þar sem hendur eru notaðar en flestir stunda aðeins eina af þeim. Einnig halda tvö efstu lið í kvenna og karla áfram í gull úrslit og einnig tvö efstu blönduð lið keppa einnig í gull úrslitum (mixed team).

Hægt er að finna heildarúrslit, dagskrá og tengt mótinu í skorskráningarkerfinu ianseo hér á ianseo.net

Sýnt var beint frá úrslitum dagsins í dag á Archery TV Iceland youtube rásinni hér https://www.youtube.com/watch?v=tK-6bqokdM4 og einnig verður sýnt beint frá mótinu á morgun í sveigboga á sömu youtube rás.