Nói Barkarson í 17 sæti á EM U21 einstaklinga og keppir með trisssuboga karla U21 liði í 8 liða úrslitum gegn Danmörku á morgun

Evrópumeistaramót innandyra er núna í gangi í Lasko í Slóveníu. Stór hópur Íslenskra keppenda er að keppa á mótinu og gengið hefur verið ágætt.

Í einstaklingskeppni var Nói í 24 sæti í undankeppni trissuboga karla U21 með skorið 567 og endaði því á móti Lewis Haslam frá Bretlandi sem var í 9 sæti í undankeppni. Í útsláttarkeppni vann Lewis gegn Nóa 145-142 og Nói er því dottinn út af EM í einstaklings keppni og endaði í 17 sæti í lokaniðurstöðum. En skemmtilegt er að segja frá að Lewis og Nói höfðu tekið útslátt á æfingarsvæði mótsins deginum áður og þar hafði Nói betur, dagsformið spilar mikið inn í þegar keppendur eru jafnir í getustigi.

Í trissuboga liðakeppni U21 á fimmtudaginn mun Nói ásamt liðsfélögum sínum keppa á móti Danmörku í 8 liða úrslitum. Það verður erfiður leikur þar sem Danska liðið var með hæsta skorið á EM og Mathias Fullerton í Danska liðinu er í öðru sæti á heimslista fullorðinna (semsagt annar besti í heimi óháð aldri), hann vann silfur á EM utandyra fullorðinna og silfur á HM ungmenna. Danmörk hefur lengi verið mjög sterkir í trissuboga flokkum í bogfimi í heiminum.

Nói er úr Bogfimifélaginu Boganum í UMSK