Máni Gautason Íslandsmeistari í bæði U18 og U21 sveigboga

Máni Gautason Presborg frá Íþróttafélaginu Akur varð tvöfaldur Íslandsmeistari í sveigboga karla í U18 flokki og U21 flokki um helgina á Íslandsmóti Ungmenna. Í gull úrslitum einstaklinga í U18 flokki keppti Máni við Veigar Finndal Atlason frá Bogfimifélaginu Boganum, en staðan þar endaði 6-2 fyrir Mána og tók því Máni sigurinn.

Veigar Finndal varð einnig íslandmeistari í parakeppni sveigboga U18 með liðsfélaga sínum Melissu Pampouile og slóu þau Íslandsmet í liðakeppni sveigboga U18 með 826 stig. Ekki eru úrslit í liða- eða parakeppni U16/U18 og því titlarnir afhentir þeim sem skora hæstu stig í undakeppni mótsins. Melissa var einnig Íslandsmeistari í sveigboga U18 kvenna.

Gæti verið mynd af 2 manns, people standing og innanhúss

Íslandsmót ungmenna innanhúss var haldið í tveim hlutum. Íslandsmót U16/U18 var haldið laugardaginn 29. janúar og Íslandsmót U21 var haldið sunnudaginn 30. janúar. Bæði mótin voru haldin í Bogfimisetrinu, Dugguvogi 2 í Reykjavík.

Finna má heildarúrslit mótsins á vefsíðu skorskráningarkerfisins ianseo og horfa á öll úrslit úr mótinu á archery tv Iceland youtube rásinni.