Magnús Darri í BF Boganum þrefaldur Íslandsmeistari í trissuboga U16 á Íslandsmóti ungmenna 2022

Magnús Darri Markússon úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi, varð þrefaldur Íslandsmeistari í trissuboga U16 annað árið í röð.

Í gullúrslitum einstaklinga mætti Magnús liðsfélaga sínum Örlygur Dýri Olgeirsson og endaði leikurinn 134-123 fyrir Magnús. Mögulegt er að sjá úrslitaleikinn milli þeirra hér fyrir ofan.

Gæti verið mynd af 2 manns, people standing, innanhúss og Texti þar sem stendur "JAKO BOGINN MAGNÚS"

Magnús og Örlygur urðu Íslandsmeistarar í liðakeppni trissuboga karla U16. Magnús vann einnig parakeppnis titilinn ásamt liðsfélaga sínum Þórdís Unnur Bjarkadóttir. Ekki eru úrslit í liða- eða parakeppni U16/U18 og því titlarnir afhentir þeim sem skora hæstu stig í undakeppni mótsins.

Íslandsmót ungmenna innanhúss var haldið í tveim hlutum. Íslandsmót U16/U18 var haldið laugardaginn 29. janúar og Íslandsmót U21 var haldið sunnudaginn 30. janúar. Bæði mótin voru haldin í Bogfimisetrinu, Dugguvogi 2 í Reykjavík.

Finna má heildarúrslit mótsins á vefsíðu skorskráningarkerfisins ianseo og horfa á öll úrslit úr mótinu á archery tv Iceland youtube rásinni.