Halla Sól Þorbjörnsdóttir í 9 sæti á EM

Halla Sól Þorbjörnsdóttir í BF Boganum í Kópavogi endaði í 9 sæti á EM ungmenna í Bogfimi í Lilleshall Bretlandi í dag.

Halla keppti með sveigboga kvenna landsliðinu ásamt Valgerði E. Hjaltested og Marín Anítu Hilmarsdóttir úr sama félagi. Stelpurnar töpuðu 6-0 gegn Austurríki í 16 liða úrslitum EM og enduðu því í 9 sæti á EM. Stelpurnar slóu einnig bæði fullorðins og U21 landsliðsmet í undankeppni mótsins  (hæsta skor sem U21 landslið hefur skorað á alþjóðlegu móti til dags), skorið var 1526 en stelpurnar skoruðu 1581.

Halla keppti einnig í einstaklingskeppni á mótinu þar sem hún var í 43 sæti í undankeppni mótsins og mætti Amalie Storelv frá Noregi í fyrsta útslætti í lokakeppni mótsins, þar leikar enduðu 6-4 fyrir þeirri Norsku. Halla endaði því í 33 sæti í einstaklingskeppni á mótinu.

Þetta var fyrsta alþjóðlega stórmót sem Halla hefur keppt á, en hún tók þátt á sínu fyrsta móti utan Íslands á Norðurlandameistaramóti Ungmenna í Júlí. Þar var sigurvegarinn einmitt Amalie sem Halla keppti á móti á EM í fyrsta útslætti. Halla kom öllum á óvart og var nánast búin að slá Norðurlandameistarann út í fyrsta leik EM einstaklinga.

Almennt um mótið

Mögulegt er að finna myndir af mótinu hér:

BFSÍ Smugmug

Archery GB Smugmug

Word Archery Europe Smugmug

Mögulegt er að fylgjast með úrslitum mótsins í heild sinni á ianseo.net

Íslensku keppendurnir á EM ungmenna fyrir BFSÍ (Bogfimisamband Íslands) eru eftirfarandi:

  • Anna María Alfreðsdóttir – ÍF Akur Akureyri
  • Eowyn Marie Mamalias – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
  • Freyja Dís Benediktsdóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
  • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – BF Boginn Kópavogi
  • Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Halla Sól Þorbjörnsdóttir – BF Boginn Kópavogi

Evrópumeistaramót ungmenna 2022 er haldið í Lilleshall Bretlandi, sem er eitt af þrem National Training Centers í landinu. Mikil hitabylgja var áður en mótið hófst og hitastig fór allt upp í 40°, en þegar mótið hófst hafði hitabylgjan gengið yfir að mestu og hiti var almennt yfir 20° með regnskúrum á milli og litlum vindi.

300 keppendur úr 30 Evrópuþjóðum eigast við á mótinu í Bretlandi. Af þeim eru 7 keppendur frá Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í EM ungmenna utandyra í bogfimi, en fyrst var miðað á þátttöku á EM ungmenna utandyra 2020 en því móti var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.