Keppt verður markbogfimi utandyra (outdoor 50/70) og víðavangsbogfimi (field archery).
Evrópuleikar Öldunga (European Master Games – EMG) er fjölíþrótta mót sem haldið er á 4 ára fresti. Mótið er sem opið er öllum einstaklingum í aðildarfélögum BFSÍ.
Venjan er að keppt sé í eftirfarandi aldursflokkum
- 30+ (30 ára á árinu og eldri)
- 40+ (40 ára á árinu og eldri)
- 50+ (50 ára á árinu og eldri)
- 60+ (60 ára á árinu og eldri)
- 70+ (70 ára á árinu og eldri)
Venjan er að boðið sé upp á markbogfimi utandyra og víðavangsbogfimi, en það getur einnig verið innandyra bogfimi. Landið sem heldur mótið ræður þeim keppnisgreinum og íþróttagreinum sem keppt er í á mótinu til viðbótar við þær hefðbundnu og er miðað við þær aðstæður sem eru í boði fyrir íþróttagreinina. Á EMG 2019 á Ítalíu var keppt utandyra í sveigboga og trissuboga (70/50) og víðavangsbogfimi í sveigboga, trissuboga, berboga og langboga.
Ekki er komið nákvæmt fyrirkomulag á hvernig keppni mun fara fram í Finnlandi og hvaða íþróttagreina og keppnisgreinar verða í boði, en þær upplýsingar koma þegar að nær dregur mótinu (sem stendur er áætlað að það verði markbogfimi utandyra og víðavangsbogfimi). Dagsetningar sem keppt verður í bogfimi koma einnig síðar.
Hægt er að fylgjast með nánari upplýsingum á vefsíðu International Master Games Association (IMGA)
https://imga.ch/2022/02/28/29-sports-included-at-the-next-2023-tampere-european-masters-games/
Leave a Reply
You must be logged in to post a comment.